Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Tindfjallaskáli og aðild að FÍ

Tindfjallaskáli og aðild að FÍ 08 des 2007 15:46 #5921

Skrifað 08 des 2007 15:46
Því miður komst ég ekki á fundinn í vikunni um málefni Tindfjalaskála. Tvennt er það í fundargerð sem vakti athygli mína. Annars vegar er haft eftir MH að hann sé með bréf frá fyrsta formanni ÍSALP þar sem hann lýsi sig samþykkan því að afhenda FÍ skálann. Ekki er þetta bréf komið frá mér, sem var fyrsti formaður ÍSALP og leiðréttist það hér með. Hitt er hugmyndin um inngöngu í FÍ sem ég vil lýsa mig algerlega andvígan. Slíkt myndi einfaldlega ganga af klúbbnum okkar dauðum. Það eru fjölmörg dæmi um þessa hluti í félagsstarfi af ýmsum toga. Hér vil ég taka undir ummæli höfð á fundinum, að nær væri að hefja herferð og efla klúbbinn okkar. Það er örugglega hægt að fá fjölmarga til að taka til hendinni í slíku verkefni ef vel er að málum staðið. Sjálfur er ég tilbúinn að leggja slíku máli lið.

Með bestu kveðju,

Sighvatur Blöndahl

svar: Tindfjallaskáli og aðild að FÍ 10 des 2007 10:14 #5922

Skrifað 10 des 2007 10:14
Ég er í höfðudráttum sammála Sighvati Blöndahl varðandi aðild að FÍ
Olli

svar: Tindfjallaskáli og aðild að FÍ 11 des 2007 01:29 #5923

Skrifað 11 des 2007 01:29
Gott innlegg, við höldum öll ótrauð áfram og eflum klúbbinn og byggjum nýja skála.

Valli
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.28 sek