Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Bláfjöll

Bláfjöll 06 des 2007 09:43 #5902

Skrifað 06 des 2007 09:43
Góðar fréttir

Átti stutt spjall við vin minn Magnús Árnason framkvæmdastjóra skíðasvæðanna. Það stefnir í opnun fyrir æfingar í dag og fyrir almenning um helgina.

svar: Bláfjöll 06 des 2007 11:00 #5903

Skrifað 06 des 2007 11:00
Bragi: Þú ert alveg að bjarga deginum með þessum fréttum!
Takk

svar: Bláfjöll 06 des 2007 21:04 #5904

Skrifað 06 des 2007 21:04
ég er sammála síðasta ræðumanni! :)
Held allavega áfram að vera bjartsýn

svar: Bláfjöll 06 des 2007 21:07 #5905

Skrifað 06 des 2007 21:07
Prufið að dansa snjódansinn..

Það er svo mikið af púðri í hlíðarfjalli að það er sprengihætta;)

svar: Bláfjöll 06 des 2007 21:11 #5906

Skrifað 06 des 2007 21:11
þú ert þá greinilega búinn að vera duglegur að dansa Gunni ;)
Kannski við tökum upp á því hérna fyrir sunnan hehe

svar: Bláfjöll 06 des 2007 22:14 #5907

Skrifað 06 des 2007 22:14
Jæja ekki amalegur dagur hér í Suðurgilinu. Utanbrautarfærið alveg magnað. Veðrið algjör draumur.

Samt ömurlegt til þess að hugsa að fleiri geti ekki notið þess með manni.

Það er ekki skortur á snjó hérna. Það er hins vegar skortur á mannskap. Þess vegna lítur út fyrir að ekki verði hægt að keyra meira en 1 stólalyftu í öllu þessu magnaða færi. Eins gott að þurfa ekki að standa í röð.

Kv. Árni Alf.

svar: Bláfjöll 07 des 2007 12:56 #5908

Skrifað 07 des 2007 12:56
Var að fara yfir Heiðina rétt í þessu of næstum því búin að keyra bikkjuna útaf við það að glápa uppí brekkur.

Fullt af snjó og við vonum bara að veðrið haldist okkur í hag næstu sólahringana.

Satt best að segja á ég bátt með að fara bara ekki í gallan strax, hlamma mér á sófan og setja eina góða snjó-ræmu í tækið. Byrja kanski að æfa þrísixtí á stofugólfinu?

svar: Bláfjöll 07 des 2007 13:26 #5909

Skrifað 07 des 2007 13:26
Mér skilst að skortur á mannskap sé líka vandamál í Bláfjöllum. Hafi einhver áhuga á hlutastarfi...

svar: Bláfjöll 09 des 2007 04:08 #5910

Skrifað 09 des 2007 04:08
Snjoadi ruman meter a 4 dogum herna i vinnunni! Medal 230sm....ahhhhhh Diry job...
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.35 sek