Botsúlur fyrir botni Hvalfjarðar voru löngum eitt helsta vígi fjallamanna á Suðvestur-horni landsins. Þar er enda mikill og fallega hábrýndur fjallasalur sem bíður upp á skemmtilegt snjó/ís ... og jafnvel mixað klifur en einnig skíðamennsku á vetrum. Á sumrin er svæðið síðan paradís fjallgöngufólks enda útsýni mikið og gott. En þetta átti ekki að verða svona uppskrúfað!
Á kortum er örnefnafæð frekar áberandi og veit ég ekki hvað skýrir. Því vildi ég kanna hvort félagar eða aðrir sem á vefinn slæðast þekkja örnefni á svæðinu. Kannast menn t.a.m. við að örnefnið Öndruskarð sé notað um skarðið á milli Syðstu- og Miðsúlu? ... og ef svo er veit þá einhver hvaðan það er komið eða hvað það merkir. Örnefnið kemur fyrir í einni færslu hér á vef Ísalp:
www.isalp.is/art.php?f=164&p=459 og einnig á tveimur öðrum þegar googlað er.
Allar ábendingar vel þegnar.
kv,
Jón Gauti