...og hvað?
Hvað ætla menn að gera, ráða starfmann, ráðast í endurnýjun TOPO-a og kannski á engilsaxnesku líka? Fá fyrirlesara til landsins? Laga skálana? og og og....
Sem víkur að spurningu minni, hvernig klúbbur ætlar Ísalp að vera?
Tel að ársritið endurspegli soldið félagsskapinn sem sækir í Ísalp, þeas menn (og konur) sem eru að gera eitthvað annað en að labba hornstrandir um sumartímann og ganga laugaveginn. Þetta eru regnhlífarsamtök f. klifrara og þá sem stunda fjallamennsku (ekki gönguferðir) og það á að einbeita sér að því og þeim hóp. Það eru til klúbbar f. þá sem vilja fara í einstaka labbitúra upp þverfellshornið og Ísalp er ekki þar á meðal tel ég. Íslenski ALPAklúbburinn er ekki f. fjallahjól heldur Íslenski Fjallahjólaklúbburinn, Íslenski ALPAklúbburinn er ekki f. Kite og heldur ekki Paragliding heldur Fisfélag Íslands. Eflaust stunda margir klifrara fjallahjólreiðar og paragliding en það á samt sem áður ekki heima í Ísalp frekar en skákkennsla. Formaður Ísalp hefur stundað Kayak, eigum við ekki bara að taka upp kayak ferðir líka?
Þegar ég segi að Ísalp eigi að styða og stuðla að framþróun fjallamennsku á íslandi að þá þýðir það ekki stiga upp þverfellshornið heldur halda utan um þann kjarna sem er meira "hard core" ef menn vilja nota það orð. Ég held að Ísalp verði að skera sig úr, sem ég tel hann alltaf hafa gert, frá Útivist og Ferðafélaginu sem er f. þá sem eru meira "soft" ef svo má að orði komast og þá ekki í neikvæðri merkingu þess orðs heldur bara til að útskýra áherslur mínar. Held að flestir skilja hvað ég meina og margir séu á sama máli. Fannst of mikið eitthvað vera um að gera Ísalp að "soft" klúbbi þar sem leiða þarf fólk áfram í allt og öllu í þessari rannsókn. Ísalp ætti að vera regnhlíf/samastaður f. þá sem sækjast í meira en almenna fjallamennska sem er ört vaxandi sport hér á landi, og einbeita sér að kjarnastarfsemi til að viðhaldi þeim hóp. Samkomur (myndasýningar, Banff, jólaglögg), atburðir (ísklifurfestival, telemark og klifurfestivöl), upplýsingaveita (topo, heimasíða og ársrit en ekki neitt fræðsluefni) eru hluti af þessari kjarnastarfsemi tel ég.
En þá kemur upp spurningin hvernig byrjar maður? Þetta er svo lokað samfélag/klúbbur. Ég held að aukning félagsmanna og klifrara undanfarin ár sýni að svo er ekki.....flestir sem ég þekki í þessum geira eru mjög opnir og liðlegir að koma nýjum að þó að maður standi ekki þessar fáu helgar sem maður á í að top-rope-a hóp af fólki sem er að byrja. Til þess eru námskeiðin.
Ef við þyrftum að velja á milli þess að fá Alexander Huber til landsins og hafa fyrirlestur eða Dean Karnazes (
www.thenorthface.com/eu/news/news-20060917.html ), þá held ég að svarið sé augljóst. Annar þeirra er of "soft" þó hann sé að gera súper flotta hluti, en bara ekki f. markhóp Ísalp. Reyndar myndi ég vilja sjá fyrirlestur hjá báðum þessum mönnum, en ég yrði undrandi ef Útivist myndi fá Alexander Huber til landsins til að halda fyrirlestur alveg einsog ef Ísalp fengi Dean Karnazes.
Ísalp er jaðarklúbbur og ég myndi ég vilja halda honum sem slíkum,
Ef þú náðir að lesa svona langt að þá þakka ég þér f. það,
kvHimmi