Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Olli búinn með 100 tindana.

Olli búinn með 100 tindana. 14 okt 2007 21:49 #5579

Skrifað 14 okt 2007 21:49
Það var skálað í Kampavíni með stæl á Heklu á laugardaginn þegar hátindahöfðinginn kláraði síðasta tindinn. Veðrið var virkilega skemtilegt en það var varla stætt í skafrenning og frosti. Það voru ca. 60-70 manns sem samglöddust Olla á tindinum og enn fleiri þegar komið var niður.

Enn og aftur til hamingju Olli.

kv.
Palli

svar: Olli búinn með 100 tindana. 14 okt 2007 22:37 #5580

Skrifað 14 okt 2007 22:37
Til hamingju gamli ;) þú náðir þessu áður en þú komst á sextugsaldurinn...

Hvað á svo að gera áður en þú verður sextugur?

kv. Smári

svar: Olli búinn með 100 tindana. 14 okt 2007 23:13 #5581

Skrifað 14 okt 2007 23:13
Til hamingju með að hafa náð markmiðinu og afmælið!!

Steppo

svar: Olli búinn með 100 tindana. 15 okt 2007 00:05 #5582

Skrifað 15 okt 2007 00:05
Til hamingju með þetta glæsilega mission og afmælið. Þú ert klikkaður og gerður úr einhverju allt öðru en við hinir (kevlar, karboni og kjarnorku - k-in þrjú myndi Umferðar Einar eflaust segja)

Congrats, ótrúleg harka.

Sissi

svar: Olli búinn með 100 tindana. 15 okt 2007 01:40 #5583

Skrifað 15 okt 2007 01:40
Takk fyrir fögur orð!
Ég var nú næstum klökkur af því að sjá hversu margi mættu þarna á Hekluna og sumir fengu eldskírn sína í skítviðri sem við allir þekkjum til fjalla. Það er alltaf gaman að setja sér háleit marmið og ennþá meira gaman þegar maður nær þeim. Menn spyrja hvað er næst??? Er ekki bara bíða eftir ísnum og berja svolítið á hinum landsins forna fjanda eða hvað???? Ég er ekki alveg dauður enn. Þetta er allt spurning um hugarfar og smá heppni með gen ásamt kannski smá þrjósku. Umfram allt það sem maður má ekki gleyma: að hafa svolítið gaman af þessu og skapa sér minningar sem maður getur yljað sér við þegar maður er kominn í ruggustólinn eftir 40 ár.
Olli

svar: Olli búinn með 100 tindana. 15 okt 2007 06:57 #5584

Skrifað 15 okt 2007 06:57
Til hamingju Olli, thetta er magnad afrek!

Bestu kvedur
Halli

svar: Olli búinn með 100 tindana. 15 okt 2007 07:51 #5585

Skrifað 15 okt 2007 07:51
Til allrar hamingju Olli! Þú ert þrautseigur andskoti, því verður ekki neitað.

Hefði verið gaman að fara með í einhverja af ferðunum en maður er víst fjarri góðu gamni. Ég lofa hinsvegar að mæta þegar þú tekur 100 hæstu í Skandinavíu.

-órh

svar: Olli búinn með 100 tindana. 15 okt 2007 10:38 #5586

Skrifað 15 okt 2007 10:38
Magnaður! Til hamingju Olli.

Eðlilegt næsta skref væri bók með leiðarvísi á 100 hæstu tinda landsins og góðum ferðasögum í bland.

kveðja
Helgi Borg

svar: Olli búinn með 100 tindana. 15 okt 2007 11:41 #5587

Skrifað 15 okt 2007 11:41
Til hamingju !
robbi

svar: Olli búinn með 100 tindana. 15 okt 2007 12:39 #5588

Skrifað 15 okt 2007 12:39
Vel af sér vikið. Einstakt afrek. Nú geturðu slakað á í viku eða svo þar til þú hleypur af stað í næsta verkefni.

Kveðja,

AB

svar: Olli búinn með 100 tindana. 15 okt 2007 17:24 #5589

Skrifað 15 okt 2007 17:24
Til hamingju Olli með að hafa klárað þetta risaverkefni.

Kveðja. Ágúst Þór

svar: Olli búinn með 100 tindana. 15 okt 2007 17:56 #5590

Skrifað 15 okt 2007 17:56
Innilegar hamingjuóskir Olli með þetta magnaða afrek :)

Kv. Unnur Bryndís

svar: Olli búinn með 100 tindana. 15 okt 2007 21:32 #5591

Skrifað 15 okt 2007 21:32
Við sem erum uppaldir í sveit vitum að það er alsiða að verðlaunagripir séu eftirsóttir til undaneldis. Margur bóndinn hefur rétt úr kútnum við að eiga slíka gripi enda getur "tollurinn" hlaupið á tugum þúsunda.

Olli er búinn að skipa sér sess sem veglegur kjörgripur og næsta verkefni (eftir hóflega hvíld) hlýtur að vera að opna banka þar sem boðið verður upp á afreksmannaundaneldi. Innifalið í verðinu getur verið blómabúnt frá Dísu....

Til hamingju með AFREKIÐ!

kv.lambi

svar: Olli búinn með 100 tindana. 15 okt 2007 22:36 #5592

Skrifað 15 okt 2007 22:36
til hamingju Olli með þetta einstæða afrek!

kv Helga M

svar: Olli búinn með 100 tindana. 16 okt 2007 06:58 #5593

Skrifað 16 okt 2007 06:58
Til hamingju með þetta.

Þetta á eftir að vera góð saga til að segja komandi kynslóðum í ellinni.

Kv.
Halli

svar: Olli búinn með 100 tindana. 16 okt 2007 11:34 #5594

Skrifað 16 okt 2007 11:34
Þetta var nú FRÁBÆRT og til lukku. Vænti þess að sjá rit útgefið, ekki minna en sjöhundruð síður. Sendi einnig hamingjuóskir með áratugina fimm. Ö.

svar: Olli búinn með 100 tindana. 17 okt 2007 06:44 #5595

Skrifað 17 okt 2007 06:44
Frábær framkvæmd á frábæri hugmynd sem á örugglega eftir að verða mörgum hvattning til dáða.

Tel samt líklegt að þetta "met" eigi eftir að standa jafnvel lengur en hitt metið hans Olla.

Enda ekki fyrir hvern sem er að fylgja í þessi fótspor.

Til hamingju Olli !
picasaweb.google.com/ivarfinn
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.54 sek