Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Að sjálfsögð náið Leifur toppnum!!!!

Að sjálfsögð náið Leifur toppnum!!!! 02 okt 2007 13:41 #5544

Skrifað 02 okt 2007 13:41
Það var að koma tilkynning um að leiðangur hans hafi náð toppnum og Leifur þar á meðan.
Til hamingju Leifur!
Olli

svar: Að sjálfsögðu náði Leifur toppnum!!!! 02 okt 2007 14:14 #5545

Skrifað 02 okt 2007 14:14
Létt verk fyrir lipran mann. Fróðlegt verður að heyra nánari lýsingu. Leifur, til hamingju.

Árni Alf.

svar: Að sjálfsögðu náði Leifur toppnum!!!! 02 okt 2007 14:49 #5546

Skrifað 02 okt 2007 14:49
Til hamingju Leifur ef satt reynist...
Í tilkynningu frá leiðangrinum er talað í fleirtölu um leiðangursmenn en ekki um Leif sjálfan. Þótt ég efist ekki eitt augnablik og viti vel að hann hefur báða fætur jafn langa! þá bíð ég enn eftir stóru fréttunum... fór hann með eða án súrefnis á tindinn. Hafi hann sleppt því held ég að það sé í fyrsta skipti sem Íslendingur fer yfir 8000 metra án súrefnis.
Það kemur þó væntanlega betur í ljós í kvöld eða á morgun þegar hópurinn er kominn í Efri Grunnbúðir (EGB).
Sjá www.utivera.is/frettir/nr/1067
Kveðja,
Jón Gauti
p.s. minni áhugasama á viðtal við kappann í nýjasta tbl. Útiveru en þar er m.a. komið inn á fetisman í háu fjöllin.

svar: Að sjálfsögðu náði Leifur toppnum!!!! 02 okt 2007 16:21 #5547

Skrifað 02 okt 2007 16:21
Já það kæmi á óvart ef Leifur væri ekki meðal þeirra sem stóðu á toppnum í dag. Hingað til hefur háfjallaferillinn hans amk verið 100%.

Var samt ekki Everest gengið (#1) súrefnislaust þarna uppi?

Ef svo er gerir það Leif fyrsta Íslendinginn sem er klipptur eins og stelpa til að fara súrefnislaus á tind yfir 8.000m ;-)

Alltaf hægt að vera fyrstur í einhverju!

En svona í tilefni af því að íslenskum Everest-ferðum fer hratt fjölgandi þá má benda á skemmtillega tölfræðisamantekt hér ...

www.mounteverest.net/news.php?news=16540

Ég bíð samt spenntur eftir að heyra loka niðurstöðuna.
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Að sjálfsögðu náði Leifur toppnum!!!! 02 okt 2007 19:23 #5548

Skrifað 02 okt 2007 19:23
úff maður!

spennandi dæmi allt saman, en ef satt reynist óska ég Leifi Erni hjartanlega til hamingju með að bæta fyrsta 8000m fjallinu í CV-ið.
Vonandi fáum við í alpaklúbbnum að sníkja myndasýningu þegar heim er komið.

p.s
ekki hlusta á Íbba haircuttið er töff!

Kv,
Freysi
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

svar: Að sjálfsögðu náði Leifur toppnum!!!! 03 okt 2007 05:21 #5549

Skrifað 03 okt 2007 05:21
Þessu var nú bara hent þarna inn til að kreysta fram bros á einhverjum - alls ekki að reyna að segja neitt með þessu!
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Að sjálfsögðu náði Leifur toppnum!!!! 03 okt 2007 09:23 #5550

Skrifað 03 okt 2007 09:23
Það skal tekið fram að eftir minni bestu vitund þá fóru strákarnir þrír(Bjössi, Hallgrímur og Einar) á Everest með súrefni þó svo að Hallgrímur hafi orðið fyrir því óláni að það myndaðist stýfla í græjunni sem hann var með sem olli því að honum þótti þetta fjandi erfitt þegar komið var vel yfir 8000 metra. Þegar farið var að tékka nánar á snáðanum kom í ljós að hann hafði verið að puða þarna upp án auka súrefnis. Þessu var snarlega kippt í liðinn.
Kveðja Olli

svar: Að sjálfsögðu náði Leifur toppnum!!!! 03 okt 2007 20:26 #5551

Skrifað 03 okt 2007 20:26
Sem þýðir það að Helgi Ben hefur haldið íslenska hæðarmetinu í flokki grímulausra, þangað til [líklega] í gær!

Cool!
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Að sjálfsögðu náði Leifur toppnum!!!! 04 okt 2007 13:22 #5552

Skrifað 04 okt 2007 13:22
Ekki rétt!

Þeir Bjössi, Hallgrímur og Einar fóru án súrefnis á Cho Oyu á sínum tíma.

kv.
Óli Júll

svar: Að sjálfsögðu náði Leifur toppnum!!!! 08 okt 2007 11:22 #5553

Skrifað 08 okt 2007 11:22
...með eða án súrefnis, til lukku Leibbi.

Hann var allaveganna skrefalengsti íslendingur sem hefur náð á toppinn,

kv.himmi

PS: sé að Ívar hefur ekki greitt árgjaldið sitt? :(

svar: Að sjálfsögðu náði Leifur toppnum!!!! 08 okt 2007 16:55 #5554

Skrifað 08 okt 2007 16:55
Til hammara Leibbi! Hárfegursti Íslendingurinn yfir 8000 ;)

Siz
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.37 sek