Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Vantar ekki metnaðinn í þetta verkefni

Vantar ekki metnaðinn í þetta verkefni 20 mar 2007 15:48 #5007

Skrifað 20 mar 2007 15:48
Rakst á þessa síðu um hóp stráka sem ætla að ganga á hæsta fjall í hverjum landshluta á einni helgi í júlí. Samtals er um að ræða um 5400 metra hækkun og rúmlega 37 km göngu og svo auðvitað hringferð um landið.

Allt er þetta gert til styrktar Sjónarhól.

Óhætt er að segja að þetta er metnaðarfullt verkefni sérstaklega í ljósi þess að þetta eru ekki reyndir fjallgöngumenn, en eru í stífum undirbúningi þessa dagana.

Datt í hug að þetta vekti áhuga fjallamanna þessa klúbs - meira á www.5tindar.is

svar: Vantar ekki metnaðinn í þetta verkefni 20 mar 2007 22:37 #5008

Skrifað 20 mar 2007 22:37
Flott markmið, en Heiðarhorn er ekki hæsta fjallið í sínum landshluta þó hátt sé, t.d. sigrar þar Syðsta súlan um heila 40 metra svo ég tali nú ekki um önnur fjöll og jökla.

En það skiptir kannski ekki öllu;)

svar: Vantar ekki metnaðinn í þetta verkefni 21 mar 2007 15:09 #5009

Skrifað 21 mar 2007 15:09
Ég hef grun um að stefnt sé að hæstu fjöllum utan jökla, enda væri þetta ovinnandi vegur ef fara ætti á Hvannadalsnhnjúk auk alls hins á einni helgi.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.18 sek