Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Tindfjallaskáli

Tindfjallaskáli 06 mar 2007 22:44 #4906

Skrifað 06 mar 2007 22:44
Um þar síðustu helgi fórum við Skúli Magnússon upp í Tindfjöll með þrjá aðra með okkur. Tilgangurinn var að skoða Tindfjallaskála og að reyna að fá styrk frá Húsafriðunarsjóði. Skálinn leit ágætlega út, nema hvað fennt hafði aðeins inn með gluggafagi í eldhúsi og inn um gólfborð við svefnloft. Nú hefur húsafriðunarsjóður ákveðið að styrkja Ísalp um 150.000kr til viðhalds Tindfjallaskála og er það mitt mat og fleiri að nota það fé í nýjan einangraðann stromp (kostar um 80.000kr án uppsetningar) og laga svo þak í leiðinni. Einnig er rétt að smiða nýtt gluggafag í eldhúsglugga, laga gólfborð í svefnlofti og mála svo skálann, bæði glugga og bárujárn. Ef ég man rétt þá ætti einnig að vera eitthvað eftir að peningnum sem FÍ lét Ísalp fá um árið. Ég er búinn að fara með blikksmið uppeftir að taka mál af strompi sem lóðaður verður beint á þakplötu þannig að það verður sjálfgefið að skoða þakið á þeirri hlið við ásetningu strompsins.
Ps. veðrið var frábært en skíðafærið frekar hart, rifskaflarnir voru eins harðir og á suðurskautslandinu og svo klaki á milli, eina skíðabrekkann sem var ágæt var úr Hakaskarði niður í skíðadal.
kv Bárður

svar: Tindfjallaskáli 07 mar 2007 12:18 #4907

Skrifað 07 mar 2007 12:18
Við félagarnir fórum í skálann rétt fyrir síðustu og þarsíðustu jól. Það er óhætt að segja að við sáum töluverðan mun á ástandi skálans milli ára.

Ég held að skálinn sé að verða fúa að bráð þar sem að það skefur sífellt meira og meira inn fyrir klæðningu á veggjum og þaki. Snjórinn situr svo sem fastast þar þartil hlánar eða kynt er upp í skálanum. Þá rignir duglega á ábúendur í skálanum og allt rennblotnar innandyra, gólf, veggir, dýnur og loft.

Ef það á bjarga húsinu þarf líklega að endurnýja allt járn og pappa á þaki og veggjum og ganga betur frá því en núna. Eins þarf að skipta um glugga á hlið og svefnlofti.

svar: Tindfjallaskáli 07 mar 2007 18:03 #4908

Skrifað 07 mar 2007 18:03
Gott að heyra að menn eru að fylgjast með ástandi skálans.

Ný stjórn mun fara í þessi mál eins fljótt og auðið er. Þá verður þessi vitneskja og áhugi á áframhaldandi skálanefndarstarfi vel þegin.

Kveðja

svar: Tindfjallaskáli 07 mar 2007 18:46 #4909

Skrifað 07 mar 2007 18:46
Er nokkuð mál að peppa upp e-a stemningu svona þegar vorar og taka aðeins til hendinni. Bara nóg af bjór með .....
Mikil synd að hafa skálann ekki almennilegan

svar: Tindfjallaskáli 07 mar 2007 20:05 #4910

Skrifað 07 mar 2007 20:05
Það er ekkert að járninu, bara mála það, skipta um fúnar spýtur og laga vindvörn. Kannski er ekki hægt að nota járnið aftur þegar það tekið af en það kemur þá bara í ljós. Allavega eru nóg verkefni miðað við fjármagn. En það er rétt að skálinn versnar með hverju árinu. Það er í lagi með gluggann á svefnloftinu en það skefur einhversstaðar inn á það. Glugginn var lagaður að Valla stóra fyrir nokkrum árum. Það er gríðarleg veðurálag á þessum stað, eins og sést á timbrinu. Best væri að bera einhverskonar tjöru á timbrið, í stað þessa rauða litar sem er nú að mestu horfinn.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.24 sek