Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hvernig fór í gær?

Hvernig fór í gær? 15 feb 2007 09:33 #4771

Skrifað 15 feb 2007 09:33
Hvernig fór fundurinn í gær? Urðu breytingar á stjórn Ísalp eða stefnuskrá? Var eitthvað ákveðið með utankjörstaðaratkvæðin?

Annars má ég til með að nefna að hér í norðri er alveg bullandi, svellandi ís og fyrirtaksaðstæður til ísklifurs vilji einhver taka forskot á sæluna fyrir festival.

Hef jafnvel hæg heimatök um að redda gistingu vilji einhver leyfa miðaldra húsfreyju að halda í spotta.

Kv. Helga

Fundarsköp 15 feb 2007 11:35 #4772

Skrifað 15 feb 2007 11:35


Aðalfundur fór vel fram, rúlega 30 manns létu sjá sig. Unnið er að því að skrifa formlega fundargerð, en þangað til hún birtist á vefnum get ég upplýst þig, og aðra, um eftirfarandi mál:

1) Utankjörfundaratkvæði voru ekki tekin gild á þessum fundi, ný stjórn mun kanna það mál fyrir næsta aðalfund.

2) Freyr Ingi Björnsson var kosinn formaður ÍSALP

3) Þorvaldur Þórsson (Olli) er sá eini sem situr úr stjórn síðasta árs. Aðrir komu nýjir inn, þeir Viðar Helgason, Sveinborg Gunnarsdóttir, Smári Stefánsson, Ágúst Steinarsson og undirritaður, Skarphéðinn Halldórsson.

4) Stefnuskrá ÍSALP er enn sú sama, hvernig ný stjórn mun útfæra hana mun koma í ljós.


Annars þakka ég húsfreyju gott boð en á því miður ekki heimangengt. Vonast til að sjá hana á festivalinu, þá gjarnan með súra kýrfótinn.

Allez!

Skabbi

svar: Fundarsköp 15 feb 2007 17:37 #4773

Skrifað 15 feb 2007 17:37
Þakka þér fyrir upplýsingarnar Skabbi.

Setti myndir af ísnum í gær á netið

www.pbase.com/helgz/s

því ég veit að ekki trúa allir þeim sem búa á Norðurlandi
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.32 sek