Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ískönnunarflug stendur nú yfir

Ískönnunarflug stendur nú yfir 29 jan 2007 04:33 #4646

Skrifað 29 jan 2007 04:33
mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1249968

Er enginn ís heima? Var að koma frá Vegas þar sem sjaldan hefur verið jafn kalt og það snjóaði meira að segja á Malibu beach, 1 cm þykkt lag á ströndinni sem hefur ekki sést í langan tíma. Aðra sögu er að segja um Munchen sem er gaddfreðin að vanda í janúar og var mér ekki skemmt að fá ekki töskurnar mínar endar klæddur eftir veðrinu í San Diego við brottför.

Í næstu vikur verður síðan farið á stærstu dótasýningu norðan alpafjalla og verður gaman að sjá hvað framleiðendurnir hafa náð að galdra fram þetta árið.

Svo er bara að vona að ísinn og snjórinn láti kræla á sér aftur svo maður geti nú eitthvað klifrað á þessu nýja ári,

Heimur versnandi fer,

kvGimp

svar: Ískönnunarflug stendur nú yfir 29 jan 2007 09:32 #4647

Skrifað 29 jan 2007 09:32
Það er enn nægur ís á Norðurlandi. Horfði upp í klettana í Skíðadal í gær og þar er heiðblár, þykkur og fallegur ís víða, stærri leiðir í fínum aðstæðum. Bara mæta norður.....

svar: Ískönnunarflug stendur nú yfir 29 jan 2007 11:30 #4648

Skrifað 29 jan 2007 11:30
...og einhver snjór fyrir ofan?
Hvernig eru flóða aðstæður í Skíðadalnum?

Var að kenna blautasta fjallaskíðanámskeið ever um helgina. Og þá spyr fólk hvar! Við fórum í Elborgarsvæðið svona til að geta hlaupið inní bíl til að þurka sig á milli atriða.
Sáum 3 flóð; 2 þeirra 3daga eða eldri og 1 7 eða eldra! Gamla var greinlilega vindflekaflóð sem rann ca 50m. Hin 2 voru líklega að falla föstudagsmorgun frekar en fimmtudag og voru niðrá jörð (rennslisflöturinn orðinn rennandi blautur).
Það er lítið eftir af lögum í snjónum þannig að þegar e-ð fer er það allt niður á jörð.
Passið ykkur á ísleiðum með snjóskálum fyrir ofan!!!

svar: Ískönnunarflug stendur nú yfir 29 jan 2007 12:10 #4649

Skrifað 29 jan 2007 12:10
Ég hef ekki séð spýjur á þessu svæði nýlega, í gær var kalt og snjórinn orðinn slatta unninn. Auk þess heftur grynnkað talsvert á snjónum. Veit að það fóru samt flóð víða um Eyjafjörð dagana fyrir helgi.

svar: Ískönnunarflug stendur nú yfir 29 jan 2007 12:22 #4650

Skrifað 29 jan 2007 12:22
Jamm, þessi 2 flóð sem ég minntist á voru víst "heimatilbúinn" og hafði rignt það mikið að engin ummerki voru fyrir því...var frá æfingu LÍV frá fyrr í vikunni, svona skeikar manni stundum! Enn samt, annað var markvert!
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.22 sek