Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Góður skáli á Norðurlandi

Góður skáli á Norðurlandi 21 nóv 2006 11:47 #4321

Skrifað 21 nóv 2006 11:47
Sælir félagar.

Mig langar til að benda ykkur á hið unaðslega húsnæði Möðruvelli sem er staðsett í Skíðadal (inn af Svarfaðardal). Þetta er eins konar skáli með gistirými fyrir yfir 10 manns og með allskonar huggulegheitum, kyndingu, sturtu, sjónvarpi, borðbúnaði og öllu því sem fjallafólki getur dreymt um. Leigugjaldið er aðeins 5000 kr fyrir nóttina og því afar hagstætt hópum. Bakvið húsið eru svo hamrar með heiðbláum ís þessa dagana, brekkur þar sem hægt er að svífa niður í púðri og almennt eru bara frábærar fjallaaðstæður þarna í kring. Auk þess er stutt í helstu skíðasvæði við Eyjafjörð.

Nánari upplýsingar má finna á: asp.internet.is/daeli/ eða hringja í s. 466-1658

Kveðja, Helga Björt

svar: Góður skáli á Norðurlandi 22 nóv 2006 09:16 #4322

Skrifað 22 nóv 2006 09:16
Snilldarhús...

Við vorum þarna um síðustu páska í góðu yfirlæti

jh
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.17 sek