Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Skór

Skór 15 okt 2005 09:32 #3356

Skrifað 15 okt 2005 09:32
Þannig er nú mál með vexti að ég er að spá í að fara að fjárfesta mér í stífum skóm fyrir vetrarbrölt. En ég virðist ekki geta fundið nema svona um það bil 2 tegundir hér á landi, og eru þær báðar frá Scarpa. Veit einhver hvort það sé einhversstaðar hægt að fá einhverja aðrar tegundir af stífum skóm en Scarpa hérna, eins og t.d. Meindl eða La Sportiva?

svar: Skór 15 okt 2005 15:19 #3357

Skrifað 15 okt 2005 15:19
Ég held að úrvalið sé ekki meira. Rakst reyndar á La Sportiva ísklifurskó í 66° norður um daginn. Held að þeir séu frekar sérhæfðir í ísklifrið og henti ekki vel í almenna fjallamennsku. Þú getur fengið þá í Fjallakofanum til að panta inn fyrir þig hvaða Scarpa skó sem er.

svar: Skór 15 okt 2005 17:30 #3358

Skrifað 15 okt 2005 17:30
Prófaðu að kíkja á www.telemark-pyrenees.com (held að ég sé að skrifa þetta rétt), ágætt úrval þar. Hausverkurinn er bara að máta og tollar!

svar: Skór 16 okt 2005 00:28 #3359

Skrifað 16 okt 2005 00:28
Ok, takk :) Vitið þið hverjir af þessum stífu Scarpa skóm eru góðir fyrir breiða fætur? Þetta er allt svo helvíti mjótt..

svar: Skór 16 okt 2005 18:40 #3360

Skrifað 16 okt 2005 18:40
Scarpa er yfir höfuð betri fyrir fólk með mjóan fót!

svar: Skór 17 okt 2005 20:00 #3361

Skrifað 17 okt 2005 20:00
hefurðu prófað stífu leðurskóna frá salomon, heita held ég super mountain eða eitthvað svoleiðis...hef ekkert nema gott að segja um þá sjálfur:P

andri

svar: Skór 18 okt 2005 10:08 #3362

Skrifað 18 okt 2005 10:08
Nei, ég hef ekki prófað þá. Veistu hvar er hægt að fá þá hér á landi?

svar: Skór 18 okt 2005 12:28 #3363

Skrifað 18 okt 2005 12:28
ég keypti mína í intersport...veit ekki hvar annarstaðar er hægt að fá þá

andri

svar: Skór 18 okt 2005 18:33 #3364

Skrifað 18 okt 2005 18:33
Þú færð þá ekki lengur á íslandi
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.32 sek