Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hverjir eru félagar?

Hverjir eru félagar? 10 ágú 2005 12:37 #3148

Skrifað 10 ágú 2005 12:37
Mér finnst ég allt of oft lenda í því að vera að lesa greinar eða texta í spjallinu og ég þekki ekki aðilana sem eru að skrifa eða er verið að fjalla um.

Þá fór ég að spá... helvíti væri nú þægilegt ef maður gæti flett upp í félagaskrá og fengið örlitlar upplýsingar um félaga - og séð jafnvel mynd, þyrfti alls ekki að vera mikið eða flókið

Ég er ekki búinn að vera lengi í ísalp og þekki því ekki marga en þetta myndi breyta heilmiklu fyrir nýgræðinga eins og mig. Þá held ég að maður væri miklu meðvitaðari um þá einstaklinga sem eru í ísalp og myndi þá kannski myndast meiri samheldni innan félagsins.

Bara pæling...

svar: Hverjir eru félagar? 10 ágú 2005 13:17 #3149

Skrifað 10 ágú 2005 13:17
Síðast þegar þetta var tekið upp mér vitandi hjá stjórninni fyrir nokkrum árum þá var niðurstaðan að birta ekki félagaskránna á vefnum.

Ég er á því að félagaskráin eigi nú að vera aðgengileg á vefnum. Með stórbættum vef má setja félagaskránna á svæði sem er einungis aðgengilegt félögum í Ísalp.

kveðja
Helgi Borg

svar: Hverjir eru félagar? 11 ágú 2005 11:47 #3150

Skrifað 11 ágú 2005 11:47
Væri ekki kjörið að taka upp málið aftur?

Það var einmitt það sem ég var að hugsa, að hafa þetta á lokuðu svæði. Svo mætti kannski hafa upplýsingar um stjórnarmeðlimi aðgengilegt fyrir öllum.

svar: Hverjir eru félagar? 11 ágú 2005 11:57 #3151

Skrifað 11 ágú 2005 11:57
Ágætu félagar, látið í ykkur heyra. Viljið þið að félagaskráin sé aðgengileg félögum á lokuðu svæði?

Upplýsingar um stjórnina eru aðgengilegar öllum .. styddu á "Um Ísalp" og veldu svo "Stjórn og nefndir íslenska alpaklúbbsins" Sjá: www.isalp.is/art.php?f=2&p=3

kveðja
Helgi Borg

svar: Hverjir eru félagar? 11 ágú 2005 13:40 #3152

Skrifað 11 ágú 2005 13:40
Í hverju félagi er nauðsynlegt að félagar geti séð hverjir eru félagsmenn, fínt að það sjáist fyrir þá sem eru félagar. Hinir geta litið á það sem gulrót til að ganga í klúbbinn (hversu kjánalega sem það hljómar...)

svar: Hverjir eru félagar? 14 ágú 2005 13:49 #3153

Skrifað 14 ágú 2005 13:49
Ég var reyndar að tala um viðbótarupplýsingar um stjórnarmeðlimi, t.d. mynd af meðlimunum ásamt upplýsingum um helstu áhugamál innan fjallamennskugeirans og annað áhugavert.

svar: Hverjir eru félagar? 15 ágú 2005 19:58 #3154

Skrifað 15 ágú 2005 19:58
Ekkert að því að félagar í klúbbnum fái að sjá félagaskránna.

svar: Hverjir eru félagar? 16 ágú 2005 10:50 #3155

Skrifað 16 ágú 2005 10:50
Félagaskráin segir harla fátt. Heimili, kennitala, sími...
Ef fólk hefur eitthvað gagn af þessu þegar það les greinar eftir ókunnuga félaga, því ekki að birta skrána? Það gæti orðið upphafið að dýrlegri vináttu.

Svo þarf að heyra í fleirum varðandi það t.d. að birta símanúmer. Skyldi vera að þegar fólk hafi gengið í klúbbinn og skráð gsmnúmer sem ekki eru skráð í símaskrána, þá hafi það verið gert í trausti þess að ekki myndu 300 manns geta tékkað á númerinu að vild?

Almennt finnst mér félagaskráin alls ekkert leyniplagg en það eru álitamál sem þyrfti að gaumgæfa, svona móralskt séð.

svar: Hverjir eru félagar? 16 ágú 2005 13:05 #3156

Skrifað 16 ágú 2005 13:05
Eru 300 manns í Ísalp? Bara að spá.

svar: Hverjir eru félagar? 16 ágú 2005 14:07 #3157

Skrifað 16 ágú 2005 14:07
366 félagar nánar tiltekið.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.68 sek