Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hraundranginn

Hraundranginn 23 jún 2005 10:02 #3067

Skrifað 23 jún 2005 10:02
Eftirfarandi skeyti hefur borist frá umsjónarmanni Hraundrangaferðarinnar:

Fyrirhuguð er ferð á Drangann í ágúst eins og sjá má á dagskrá klúbbsins. Erfitt er að segja nákvæmlega til um þann tíma sem það tekur að komast upp því það veltur á fjölda og getu hópsins, allt frá rúmum 3 tímum upp í ??.
Því ætlum við að byrja daginn snemma. Hittast kl. 08:00 við sundlaug Akureyrar og um að gera að taka sundfötin með til að enda daginn þar eða í Þelamörk að göngunni lokinni.
Þar sem þið verðið á ferð á Norðurlandi er mikilvægt að gleyma ekki sólarvörninni. Ágætt væri ef þið pökkuðuð líka regnheldum jakka, svona ef þið viljið breiða yfir ykkur á sundlaugarbakkanum.
En annars ættu allir að vera búnir hefðbundnum klifurbúnaði þ.e. belti, nokkrar karabínur, sigtól, e-s konar línuklemma og hjálmur.
Endilega grípið með klifurlínu ef þið eigið.
Dranginn hefur orð á sér að vera svolítið laus í sér en klifrið var mun skárra en ég átti von á þegar ég fór um árið. Vegna mögulegs grjóthruns er mikilvægt að fara varlega og þegar kallið kemur og þið farið að heyra hvin er um að kerra að kyssa klettinn.
Ef þið hafið einhverjar spurningar látið þær bara flakka og ég skal gera mitt besta að sjá hvort ég geti ekki svarað þeim.
Sólarkveðjur að NORÐAN!
Böbbi

svar: Hraundranginn 24 jún 2005 19:51 #3068

Skrifað 24 jún 2005 19:51
Hvað er línuklemma ? Eitthvað fyrir þvott kannski?

svar: Hraundranginn 24 jún 2005 21:51 #3069

Skrifað 24 jún 2005 21:51
sko, línuklemma skeður t.d. ef einhver lendir í meiriháttar vandræðum með línu, getur jafnvel verið lífshætturlegt.
Dæmi...
Klifrari í vegg dregur línuna í gegnum tryggingartól félagans...
Klifrari flækir sig vandlega inn í línu annara í leiðinni...
Klifrari hendir uppgerðri línu fram af brún og hittir félaga...
Klifrari fer í brúarhopp og línan er of löng eða sllitnar...

....Línuklemma er sem sagt slæmt mál

svar: Hraundranginn 27 jún 2005 14:57 #3070

Skrifað 27 jún 2005 14:57
Myndavélunum má heldur ekki gleyma. Takið nóg af myndum og setjið á vefinn. Setjið þetta á Síður félaga. Margar myndir frá félögum hafa ratað inn á síður undirritaðs að undanförnu og þótt manni þyki gaman að státa af ofboðslega mörgum félagasíðum er ekki þar með sagt að maður ætli að skreyta sig með lánsfjöðrum endalaust.

-Hvet því alla til að taka myndir í ferðum sínum og búa til félagasíður.

STOPP! 27 jún 2005 18:00 #3071

Skrifað 27 jún 2005 18:00
Þessi Hraundrangaumræða er með öllu ábyrgðarlaus þar sem ekkert er minnst grunnbúnað til Hraundrangaferða.

Hraundranginn er einn fárra tinda þar sem til staðar er nokkuð áreiðanlegt bókhald uppáferða. Að auki er þar viskífleygur í nafni ÍSALP og á honum er sú kvöð að hann má ekki tæmast.
Það er því grundvallar atriði að hafa meðferðis Skoskar guðaveigar og leggja metnað í að skilja við pelan fullan.
Við Tómas Júlíusson munum síðan brölta þarna upp á uþb 12 ára fresti til að kanna bragðið á viskíblöndunni sem er til staðar á hverjum þeim tíma sem endurkoman á sér stað.....

svar: STOPP! 27 jún 2005 19:14 #3072

Skrifað 27 jún 2005 19:14
Kalli ! Í guðanabænum mundu eftir að taka með þer línuklemmu

svar: STOPP! 27 jún 2005 19:44 #3073

Skrifað 27 jún 2005 19:44
Hrappur, -ég á í fórum mínum júmmara, shuntara, grigri og ótölulegan fjölda af prússikk en ég tel að þetta ætti allt að blessast án þess þess að klemma línurnar svona svakalega.
Viskíið er málið....

svar: STOPP! 27 jún 2005 23:55 #3074

Skrifað 27 jún 2005 23:55
Kannski að Haraldur Guðmundsson, viskíspekúlant Ísalpara, getir komið mönnum til bjargar í þessum málum?

Við Hrappur kunnum nefnilega bara að klára viský, og er þá málið að blanda saman tveimur single malt til að teyga hinn frábæra, hressandi og umfram allt þjóðlega drykk, dúbbel malt og appelsín!

Sissi

svar: Master Blender - cutting da mix 28 jún 2005 10:33 #3075

Skrifað 28 jún 2005 10:33
Ekki það að ég gefi mig út fyrir að vita mikið um blöndur (ath. ekki norðlenska appelsínusafann!!!), þá myndi ég vilja biðja Böbba og aðra leiðangursmenn að varna Sissa för því hann er vís með að vilja spike-a drykkinn með mixi, sem er náttla ekki fyrir fermda menn að drekka! Kalli og Tommi yrðu líklega fyrir vonbrigðum með 12 ára gamalt mixið.

Mæli með góðu eyjaviský, t.d. Laphroaig (fer væntanlega vel í menn á þjóðhátíð í eyjum) ;o)

bið menn vel að lifa
Halli

svar: Master Blender - cutting da mix 28 jún 2005 11:30 #3076

Skrifað 28 jún 2005 11:30
Alveg rétt hjá Karli að hefja viskíumræðuna. Menn hafa nefnilega orðið vísir að því að skilja eftir í fleygnum ýmislegt annað en viskí, s.s. vatn eða vodka! Spurning hvaða blöndunarmeistari hafi verið þar á ferð?

Spurningin er líka hvenær ætti að skilja eftir nýjan fleig, í stað þess að fylla á. Hér er kannski komið verkefni fyrir stjórnina að íhuga. Í stað þess að greiða félagsgjöld getum við Norðanmenn séð til þess að fleygurinn sé tiltölulega nýlegur og þá vonandi með óblönduðum veigum?

En í guðana bænum ... ekki gleyma hressingunni!

Kv.
Böbbi

svar: Master Blender - cutting da mix 28 jún 2005 20:01 #3077

Skrifað 28 jún 2005 20:01
Það dugar nú ekkért minna en flaska (líters) ef við sissi eigum að nenna þarna upp. Svo á að banna að blanda þetta á að vera laphroaig einsog Halli bendir á. Gott að hin sönnu gildi fjallamennsku hafa ekki gleymst.

svar: Master Blender - cutting da mix 30 jún 2005 18:04 #3078

Skrifað 30 jún 2005 18:04
Crazy, með júmmara í annarri og viskípela í hinni. Allt stefnir í hörku partý á Hraundranga.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.25 sek