Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Tryggingar fyrir fjallamenn

Tryggingar fyrir fjallamenn 27 jan 2005 17:54 #2504

Skrifað 27 jan 2005 17:54
Umræða um slysatryggingar kemur upp reglulega ef e-h fer úrskeiðis eða e-h fær hland fyrir hjartað.
Það hefur verið rætt um að ÍSALP semji um slíkar tryggingar en viðbrögð tryggingafélaganna voru vægast sagt dræm.

Það er þó einn raunhæfur möguleiki á slysatryggingu fyrir fjallamenn:
Hafi menn e-h tryggingapakka sem innifelur bíl, hús, innbús, slysatr og allt hvað það heitir er mögulegt að semja um viðbætur á almennri slysatryggingu svo hún innifali skíðun, klifur, snjóflóð oþh. Verð og skilmálar er æði misjafnt en forsendurnar eru alltaf þær sömu: -að þetta sé hluta af stærri pakka.
Einnig er möguleiki ða semja um e-h útvíkkun á tryggingum sem menn hafa hjá vinnuveitanda sem í e-h tilfellum innifelur sk frítímatryggingu.

hyggist menn tryggja sig í e-h annað en feita bolta og skrúfur verða menn að fara á stúfana....

Látið vita hver þríhöfða þursans býður best.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.22 sek