Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Botnsúlur og Glymsgil

Botnsúlur og Glymsgil 24 jan 2005 22:24 #2478

Skrifað 24 jan 2005 22:24
Átti leið um Botnsúlur á laugardaginn, þar fóru mikinn félagar í Björgunarsveit Hafnarfjarðar í viðgerðum á Bratta. Ég setti inn nokkrar myndir af framkvæmdunum inn á síður félaga. Ég held að við ættum öll að geta þakkað þeim fyrir framtakssemina.

Fór síðan í Glymsgil á sunnudaginn. Það er svo sem ekki frásögum færandi, nema að þar urðum við Ingó vitni að því stærsta íshruni sem ég hef séð í návígi. Myndir af herlegheitunum eru á sömu síðu, en það var eitthvað vesen með stóru myndirnar, en þumbneilarnir sýna hrunið samt sem áður.

jh

svar: Botnsúlur og Glymsgil 24 jan 2005 23:23 #2479

Skrifað 24 jan 2005 23:23
Djjjjöfullin og dauðin.
Þið eruð ekki feigir félagar.

Palli

svar: Botnsúlur og Glymsgil 25 jan 2005 09:08 #2480

Skrifað 25 jan 2005 09:08
Ok, ég er með fiðring í maganaum. Þetta er ekkert grín! Til hamingju með að vera á lífi félagar.

Retro

svar: Botnsúlur og Glymsgil 25 jan 2005 10:28 #2481

Skrifað 25 jan 2005 10:28
Svei...ég ætti kannski að fara að hlusta á tengdamömmu áður en það er of seint.

ó

svar: Botnsúlur og Glymsgil 25 jan 2005 10:32 #2482

Skrifað 25 jan 2005 10:32
-eins og Aðalríkur Alsgáði hefur margsagt þá er aðal ógnvaldurinn að himininn hrynji yfir menn....
Fyrstu fregnir mínar af isþiljunum í Kaldakinn var einmitt af hamförunum þegar þilin hrynja....
Ég man ekki betur Jónki, -en þegar við vorum á Franska ísfestivalinu um árið hafi orðið e-h aföll þegar foss hrundi með klifrara.

Það er til marks um hvað Jónki er smávaxinn, að þó stór hluti þilsins hrynji niður....-þá hittir það ekki á Jónka!...

svar: Botnsúlur og Glymsgil 25 jan 2005 12:24 #2483

Skrifað 25 jan 2005 12:24
Brids heima hjá mér í kvöld.

Ísklifur er úti, brids, snóker, og skák er inni.

Svei.

AB

svar: Botnsúlur og Glymsgil 25 jan 2005 12:47 #2484

Skrifað 25 jan 2005 12:47
shit !

kv. d

svar: Botnsúlur og Glymsgil 25 jan 2005 13:14 #2485

Skrifað 25 jan 2005 13:14
Öss!

Andri - þú gleymdir stífri bjórdrykkju sem er klárlega hobbí of choice í snjó-/ísþunglyndi, sérstaklega þar sem þú þarft að fara að byggja upp öflugri magavöðva!

Siz

svar: Botnsúlur og Glymsgil 25 jan 2005 13:14 #2486

Skrifað 25 jan 2005 13:14
Það er ekkert minna! Svo bregðast kross tré sem önnur tré!

Annars flott hjá Hafnfirðingunum! Gerið hafnarfjarðarsveitina að heiðursfélaga og sendið henni úrval ársrita og leiðarvísa.

Gvöð minn góður, þvílík ótíð!
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Botnsúlur og Glymsgil 25 jan 2005 13:48 #2487

Skrifað 25 jan 2005 13:48
Fyrst katastrófusögurnar eru farnar að fjúka þá læt ég okkar helgarsögu fjúka í leiðinni.

Við Haukadalsfararnir upplifðum einnig heldur óskemmtilega stund um helgina.
Vorum komnir 2/3 upp Trommarann þegar ógurlegur dynkur heyrist einhvers staðar frá og virtist hann koma úr okkar eigin fossi. Ég var að klifra en Robbi þóttist finna jarðskjálfta upp á 6 á Richter þegar þetta gerðist (ýki það nú reyndar) og fannst hann einnig sjá þversprungu sér í ennishæð gleikka um einhverja millimetra (en það gæti nú verið ímyndun...).
Sissi og co hinum megin í gilinu heyrðu lætin mjög greinilega.
Þó var ekki einu sinni yfir 0°C hjá okkur. -1°C eða svo ef ég man rétt.
Mjög hressandi að heyra fossinn sinn sunka niður án þess að sjá nein ummerki um hrun...

Jibbíkæjei!

svar: Botnsúlur og Glymsgil 25 jan 2005 14:26 #2488

Skrifað 25 jan 2005 14:26
...nú, svo er hægt að skella sér á dansgólfið!

Hér eru nokkrar línur sem eiga vel við atburði helgarinnar og þá er ekkert eftir annað en að æfa Travolta-sveifluna....

...
Ah, ha, ha, ha, stayin' alive, stayin' alive.
Ah, ha, ha, ha, stayin' alive, stayin' alive.
Ah-ha, ha, ha, stayin' alive, stayin' alive.
Ah, ha, ha, ha, stayin' alive.

Step to the side
You'd better run and hide
Move to the side Ev'rybody wants to stay alive.
...

svar: Botnsúlur og Glymsgil 25 jan 2005 16:39 #2489

Skrifað 25 jan 2005 16:39
Siggi, þú þarft að vera með diktaphone til að taka upp öll þessi óhljóð sem þú heyrir, svo eftir nokkur ár geturðu mixað þau saman og gefið út disk sem héti t.d; Shit in our pants eða Time to bail. Ég tek eitt stykki!

lkajfoæ 26 jan 2005 09:27 #2490

Skrifað 26 jan 2005 09:27
Skráðu mig líka niður fyrir einu eintaki! Snild!
Ekki vitlaust að vinna þetta með Andra, það eru allar líkur á að hann verði oft nálægt þegar eitthvað sniðugt gerist.
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: lkajfoæ 26 jan 2005 11:45 #2491

Skrifað 26 jan 2005 11:45
Múahahah

svar: lkajfoæ 26 jan 2005 13:22 #2492

Skrifað 26 jan 2005 13:22
Rétt Ívar. Siggi hafðu samband, ég er lunkinn í að þefa uppi vandræðin, hrun, snjóflóð eða bílveltur, just name it.

Kveðja,

AB

svar: lkajfoæ 26 jan 2005 14:55 #2493

Skrifað 26 jan 2005 14:55
Mér skilst víst að hægt sé að fá áhættutryggingu fyrir okkur vitleysingana ef við skyldum nú verða fyrir ísfossi eða hoppa óvart fram af kletti. Fyrir einungis 60000 spírur á ári...gjafaverð.
Kanski maður ætti að skoðaða, og já eitt eintak fyrir mig.
RH

svar: lkajfoæ 27 jan 2005 11:24 #2494

Skrifað 27 jan 2005 11:24
ég athugaði einu sinnni hjá einhverjum tryggingasölumanni svona áhættutryggingu og þá kostaði þetta töluvert meira en 60.000 að mig minnir um 10.000 á mánuði, en kannski er þetta eitthvað ódýrara ..... bara athuga að öll möguleg og ómöguleg slys séu innifalinn.

Jóseppe

svar: Tryggingar 27 jan 2005 12:07 #2495

Skrifað 27 jan 2005 12:07
Ég er með slysatryggingu sem gildir fyrir allt nema keppni, æfingar fyrir keppni og ísklifur. Kostar einhvern 14.000 kall á ári. Árgjaldið breytist í mánaðargjald ef maður vill hafa ísklifur eða fallhlífarstökk memm einhverra hluta vegna. Held að þetta sé bara fáfræði. Rökræddi þetta við sölufólkið þangað til það var orðið hel-pirrað á mér.

Ef einhver hélt að það væri einhver sveigjanleiki hjá starfsfólki í tryggingaþjónustu þá er það rangt.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.45 sek