Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Vordagskrá ÍSALP komin

Vordagskrá ÍSALP komin 19 jan 2005 15:08 #2420

Skrifað 19 jan 2005 15:08
Hrútmánuður rennur sitt skeið, þorri gengur í garð og ég get tekið gleði mína á ný. Sé ekki einungis fram á velútilátnar lystugar vambir og úldinn mat sem ég skola niður með görugu sulli, heldur hef ég líka tilefni og ástæðu til hafast við úti undir beru lofti. Sé það í ævintýralegum hyllingum að hokra í tjaldi bakvið háan klett í norðan skafrenningi, þjösnast upp á tindinn með vindinn í rassgatinu eða skáskera mér niður eitthvert klettahaftið skjálfandi og hálf slefandi úr hræðslu. Margur telur mann geggjaðan, - já bara best geymdan á hæli. Ég læt sem ég heyri ekki athugasemdirnar og fagna, já hreinlega fagna nýútkominni dagskrá Ísalp fyrir vorið, bretti upp ermar og geri mér far um að mæta í alla dagskrárliði.

Jú, jú á dagskránni er ferð hér og ferð þar, námskeið....jú, jú.....hmm....en sjáum nú til Telemarkhelgina vantar á dagskránna. - Hva....eru menn farnir að gleyma sér í hálffreðnum ísdraumum og heillandi dótaauglýsingum? Tek málið í mínar hendur og minni á Telemarkhelgina á Akureyri 11. – 13. mars 2005.

Held áfram að skoða dagskránna og rekst þá á fyrirhugaðan fyrirlestur Simon Yates og kvikmyndasýningu kennda við Banff, velti því fyrir mér hvenær þessir dagskrárliðir er ráðgerðir. Við sveitamennirnir verðum nefnilega að skipuleggja allt fyrirfram.

Maður fer nú ekki í kaupstað á hverjum degi!

svar: Vordagskrá ÍSALP komin 20 jan 2005 08:26 #2421

Skrifað 20 jan 2005 08:26
Á síðasta fundi stjórnar Ísalp var Telemerkurfestivalið rætt og ég veit ekki af hverju það rataði ekki inn á dagskránna.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.41 sek