Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Spánn

Spánn 18 maí 2004 14:02 #1674

Skrifað 18 maí 2004 14:02
Er einhver sem hefur gengið um Pýreneafjöllin og kann að mæla með skemmtilegum gönguleiðum eða fjöllum til að þramma á. Þá er ég ekki að tala um klettaklifur eða brodda- og ísaxastúss heldur meira tölt með bakpoka og svoleiðis.

Mér sýnist á umræðunni að flestir séu annað hvort á leiðinni til Spánar eða séu þar almennt með annan fótinn. Greinilega heitasta landið í dag, hmmm....

svar: Spánn 19 maí 2004 10:37 #1675

Skrifað 19 maí 2004 10:37
Ég fór einu sinni á skíði í grennd við Ax les Thermes (Frakklandsmegin) og kippti þá með þér kortum og bók með leiðarlýsingum af því svæði. Skemmtilegt svæði, enda þótt þarna verði of heitt á sumrin. Er sjálfur á leiðinni þarna í byrjun júlí. Svæðið býður alm. upp á 1-3 daga túra og er þá gist (og étið) í skálum. Þér er velk. að kíkja á þetta materíal ef þú vilt. Annars held ég að hægt sé að gera skemmtilega hluti nánast hvar sem er í þessum fjöllum.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.26 sek