Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hrútsfjallstindar eru ekki í Skaftafelli

Hrútsfjallstindar eru ekki í Skaftafelli 15 mar 2004 22:01 #1468

Skrifað 15 mar 2004 22:01
Ég missti víst af umræðunni um daginn en get ekki orða bundist nú þegar ég les þetta. Ég er fyrrverandi landvörður í Skaftafelli og vil fyrst og fremst benda á að ef maður ekur upp að Hafrafelli þá er maður utan þjóðgarðs, auk þess sem að teikning af þjóðgarðinum sýnir að ef menn fara hefðbundna leið upp Svínafellsjökul og upp Eystra Hrútsfjall koma menn aldrei inn í þjóðgarðinn. sjá www.ust.is/Natturuvernd/Thjodgardar/Skaftafell/
Það er linkur þarna á skjal sem sýnir þessa mynd...
Hins vegar lenda menn í þjóðgarðinum ef menn fara t.d. niður Hafrafellið.

Landeigendur hefðu heldur ekki getað bannað mönnum göngu um þetta ógirta land þó þeir vildu. Ég er sjálfur landeigandi hér.

Hefði ég þurft að fara á Svínafellsjökul hefði ekkert stoppað mig nema ef vörðurinn hefði sýnt mér uppáskrifað bann frá Sýslumanni sem hefði gilt fyrir þennan tiltekinn dag/daga.

Ég legg til að strákarnir sem var vísað frá fari í mál við Saga Film.

Kær kveðja, Einar Öræfingur.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.16 sek