Ég var á vappi ásamt félögum mínum í Skaftafelli um helgina. Planið var að fara inneftir svínafellsjökli og upp á hrútsfjallstinda. Þegar við lögðum í hann, keyrðum inn afleggjarann hjá svínafellsjökli þá mætir ökkur einhver maður sem segist vera öryggisvörður og við megum ekki fara lengra,ALLUR jökullinn sé lokaður vegna upptöku á nýjustuy Batmanmyndinni og við verðum að snúa við, okkur til mikillar gremju. En við sættum okkur ekki við þetta og spurðum hvort að hann hefði einhver uppáskrifuð plögg frá sýslumanni um að almenningur mætti ekki fara um svæðið. Hann sagði örugglega, en hann væri ekki með neitt á sér, og í þakkabót þá var hann ekki einkennisklæddur og síndi okkur ekki neitt skírteini um að hann væri einhver öryggisvörður. Þetta fannst okkur frekar loðið allt saman. Við sögðumst ætla að labba áfram, en vera umburðarlyndir og taka stóran sveig fram hjá öllu batteríinu, en þá var okkur hótað lögsókn. Þá fengumj við númerið hjá e-um "öryggisfulltrúa" sem við rifumst við , og á endanum létum við undan og snérum við. Við þurftum að taka á okkur krók frá freysnesi til að komast inn á jökul. Eftir allt umstangið og og krókinn sem við tókum á okkur þá sáum við fram á að við þyrftum að fara niður í myrkri og vonda veðrinu sem var spáð um kvöldið svo að við snérum við.
En við héldum samt ótrauðir áfram ,þótt við sæum ekki fram á að komast á topp, og fórum upp hafrafell og eltum hrygginn þangað til að tími væri kominn til að snúa við vegna þröngra tímamarka. Þrátt fyrir það var steikjandi hiti, heiðskýrt og logn...en skjótt skipast veður í lofti og við létum skynsemina ráða.
Hér með lýsi ég yfir óánægju minni yfir þessum yfirgang, að banna almenningi að ganga um ógirt landsvæði, þar af í þjóðgarði landsins og skv.12.gr. lög nr.44 frá 1999 þá:
"12. gr. Réttindi og skyldur almennings.
Almenningi er heimil för um landið og dvöl þar í lögmætum tilgangi."(
www.althingi.is/lagas/nuna/1999044.html)
Einnig höfðu Batmanmenn hulið upplýsingaskiltið sem benti á afleggjarann að Svínafellsjökli, sem er að sj´ðalfsögðu bannað með lögum.
Með Batmankveðjum:
Róbert hinn reiði.