Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Sterling Rope Fusion Photon 7.8mm Dry Rope

Sterling Rope Fusion Photon 7.8mm Dry Rope 16 jan 2012 08:05 #12705

Skrifað 16 jan 2012 08:05
Mig langaði svona að forvitnast um þessa línu hvort að fólk vilji meina að hún sé nógu góð sem single rope í jöklagöngur? Og hvernig er að prússika sig upp á henni þar sem hún er bara 7,8 mm breið?

Þetta á víst að vera snilldar lína bæði half og twin rope. Nánar um hana hér: www.sterlingrope.com/product/0/fp/_/Fusion_Photon

Re: Sterling Rope Fusion Photon 7.8mm Dry Rope 17 jan 2012 00:54 #12716

Skrifað 17 jan 2012 00:54
Sælir

Hún er twin og half rope. En ef þú ert að spá í að nota hana staka í göngu á jökli þá er það ok. Gæda iðnaðurinn notar heillínur en Photon er alveg nógu sterk og gott betur. Beal selja jöklalínur í 20-40m lengdum sem eru 8mm og er mjög mikið notað það eru twin línur. Einnig Sterling Ice Thong 7,7mm twin.

Prusikinn virkar best ef hann er um 3mm grennri. Mjúkur 6mm eda bara 5mm ekki nota grennra en það!

Kv. Jón Heiðar

Re: Sterling Rope Fusion Photon 7.8mm Dry Rope 17 jan 2012 18:01 #12729

Skrifað 17 jan 2012 18:01
Sælir
Ég hef sjálfur verið að skoða þessa línu og reyndar einnig þessa hérna www.mytendon.com/rope-tendon-master-7-8 spurning hvort að prusikinn virki betur á hana þar sem sheath slippage er 0 mm??

Re: Sterling Rope Fusion Photon 7.8mm Dry Rope 17 jan 2012 18:56 #12730

Skrifað 17 jan 2012 18:56
Seath slippage er skrið á kápu miðað við kjarna og hefur ekkert með prússikinn að gera. Sterling línan er helvíti flott og virkar vel í þetta. Hún er líka snilld í ísklifrið, dregur í sig lítið vatn og er létt.

robbi

Re: Sterling Rope Fusion Photon 7.8mm Dry Rope 18 jan 2012 00:16 #12738

Skrifað 18 jan 2012 00:16
Ég held að það sé sama og enginn framleiðandi á dynamic línum sem er með kápu skrið innifalið:) En á gríns þá er það ekki á klifurlínum, algengara á statískum. Prussik kemur þar ekkert málinu við heldur.

Þekki ekki gæði Tendon en Beal og Sterling eru og hafa alltaf verið leiðandi á línu markaðinum í evrópu og bandaríkjunum. Pottþétt gæði þar!

Re: Sterling Rope Fusion Photon 7.8mm Dry Rope 19 jan 2012 18:51 #12752

Skrifað 19 jan 2012 18:51
Takk fyrir þessar ráðleggingar strákar. Hjálpar mér í ákvarðanatökunni.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.30 sek