Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Snjóflóð Eldborgargili

Snjóflóð Eldborgargili 05 jan 2012 12:33 #12632

Skrifað 05 jan 2012 12:33
Vissi af nokkrum fjallaskíðamönnum í Eldborgargili í gær. Ágætis fleki sem hefur farið þarna af stað. Brotstálið uppi hátt í 100 m langt og spýjan nyrst í þessu vel yfir 100 löng og nær niður í "skíðaleið". Gaman að heyra nánari lýsingu. Fór þetta af stað undan skíðamanni?

Kv. Árni Alf.

Re: Snjóflóð Eldborgargili 05 jan 2012 20:51 #12634

Skrifað 05 jan 2012 20:51
Við vorum nokkur að leika okkur þarna uppfrá, Róbert Þór og Jade, Ívar, Björgvin, Guðjón Örn og ég, Gunnar Atli.
Það er skemmst frá því að segja að við vorum búin að dúlla okkur við að skoða snjóprófíla undir dyggri stjórn Róberts Þórs og ákveða að líklegast væri ekki sniðugt að skíða mikið í hengjurnar þar sem við fundum 2 leiðinleg lög í snjónum og vindáttin búin að vera þannig að hengjurnar eru búnar að safna vel í sig.
Þrátt fyrir þessa vitneskju náðu bæði ég og Ívar að setja flóð af stað með því að skíða í annarsvegar hengju og hinsvegar í mikin bunka af snjó sem skafið hafði til í brekkunni.
Semsagt, bæði flóðin sett af stað af skíðamönnum og það seinna mun stærra, það er til í fullri lengd á vídeói þegar ég skíða í snjóbunkann og kem flóðinu af stað og er Ívar með það hjá sér, Guðjón Örn gæti átt vídeó af flóðinu sem Ívar setti af stað.

Ég, Róbert Þór og Jade fórum aftur í morgun og skinnuðum upp nokkru neðar þar sem við fylgdumst með miklum vélsleðagörpum trylla upp alla brekkuna og nánast inn í hengjuna sem hékk þar fyrir ofan en í það skiptið kom ekkert niður....

Kv, Gunnar Atli

Re: Snjóflóð Eldborgargili 05 jan 2012 22:57 #12636

Skrifað 05 jan 2012 22:57
Hérna er mynd af flóðinu, fiktaði aðeins í henni til að draga fram útlínur flóðsins
P1010337sm.jpg
Notendur sem þakka:: Haraldur Guðmundsson

Re: Snjóflóð Eldborgargili 06 jan 2012 00:20 #12637

Skrifað 06 jan 2012 00:20
Hér er linkur á video úr túrnum upp í Bláfjöll.

Ég reyndi að fikta með birtu og skugga til að flóðið sæist almennilega. Flóðið er eftir ca 1 mín í videoinu

Linkur Video
Notendur sem þakka:: Skarphéðinn Halldórsson

Re: Snjóflóð Eldborgargili 06 jan 2012 14:24 #12643

Skrifað 06 jan 2012 14:24
Um að gera að fara varlega. Þetta flóð fer nákvæmlega af stað eins og ég hef lent í fyrir ofan Sólskinsbrekkuna. Ætli það sé ekki nokkuð algengt að svona hengjuflóð fari af stað á brúnum Bláfjalla.

Árni, getur þú sett inn í daglegu skýrslurnar þínar um Bláfjöll hvenær hengjur hafa verið ruddar/sprengdar niður og þá hvar?

Re: Snjóflóð Eldborgargili 06 jan 2012 16:48 #12644

Skrifað 06 jan 2012 16:48
Fyrra flóðið sem sést í vídeóinu hans Guðjóns var ekki stórt. Það seinna var stærra og er það sem Árni er að tala um. Það rann lengst niður hlíðina og nánast alveg niður í pist. Ívar náði því nokkið vel á vídeó. Spurning hvort hann smelli því hér inn líka.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.39 sek