Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: jöklatjöld fyrir kvikmynd

jöklatjöld fyrir kvikmynd 01 des 2011 12:08 #12376

Skrifað 01 des 2011 12:08
Mig vantar nokkur jöklatjöld fyrir leikmynd í bíómynd sem er að fara í tökur á næstu dögum. Er einhver hérna sem á svoleiðis grip sem hann er ekki að nota í augnablikinu og væri til í að leigja í smá tíma???

Ef svo er endilega hafið samband í síma 8455090 Freyja

Re: jöklatjöld fyrir kvikmynd 01 des 2011 19:31 #12379

Skrifað 01 des 2011 19:31
Tékkaðu á www.mountainguides.is/ samanber hinn þráðinn sem þú startaðir. Þeir eiga slatta af jökla-túrhestatjöldum sem eru ekki í notkun núna og hugsanlega hægt að díla við þá.

Jöklatjöld eru býsna dýr (sjálfsagt yfir 100 þús kall týpan sem flestir nota, TNF VE-25) og auk þess aðeins meira trikkí í uppsetningu og umgengni = auðvelt að skemma eitthvað sem getur skipt miklu máli. Mér þykir því afar ólíklegt að einstaklingar láni sinn persónulega búnað.
Notendur sem þakka:: Freyja Vals Sesseljudóttir

Re: jöklatjöld fyrir kvikmynd 01 des 2011 21:41 #12382

Skrifað 01 des 2011 21:41
Já ég geri mér fulla grein fyrir því, er að fara á námskeið í að tjalda svona tjöldum. Ég er líka búin að tala við mountainguides og þeir eru að athuga málið fyrir mig. Málið er bara að ég vil fá sem mesta feedback af því að ég veit ekki hvort þeir geti lánað mér búnað svo að mér datt í hug að auglýsa hér.

Leikmyndadeildin er líka mjög pró í þessu verkefni, allir þaulvanir og vanir að meðhöndla dýrmæta hluti :)

kv
Freyja

Re: jöklatjöld fyrir kvikmynd 01 des 2011 23:32 #12384

Skrifað 01 des 2011 23:32
Sæl Freyja,

Ef svo vill til að tökur séu á suðausturlandi þá er ég með tilboð fyrir ykkur.

Ég er með 4 Marmot Thor tjöld sjá marmot.com/products/thor_3p?p=118
3 þeirra eru 3ja manna og eitt 2ja manna. Ég er til í að leigja þau í nokkra daga á 25.000 kr stykkið, sem sagt 100.000 öll fjögur. Er í Öræfum á suðausturlandi.
Einar hjá Öræfaferðum í síma 8940894
Notendur sem þakka:: Freyja Vals Sesseljudóttir

Re: jöklatjöld fyrir kvikmynd 02 des 2011 00:53 #12385

Skrifað 02 des 2011 00:53
Nú veit ég ekkert um hvaða kvikmyndverkefni þetta er að hverjir standa að því.

En vert er að hafa í huga að stærri kvikmyndaverkefni eru rekin á einnota kennitölum vegna ákæða um vsk endurgreiðslur.

Ég ráðlegg engum að lána eða selja eitt eða neitt til kvikmyndagerðar nema gegn staðgreiðslu eða góðum tryggingum.

Re: jöklatjöld fyrir kvikmynd 02 des 2011 10:40 #12388

Skrifað 02 des 2011 10:40
Þakka þér fyrir Einar, verð í sambandi við þig.

Re: jöklatjöld fyrir kvikmynd 02 des 2011 21:35 #12398

Skrifað 02 des 2011 21:35
Takk fyrir tilboðið þitt Einar.
Ég hef fengið jöklatjöld leigð annarsstaðar en þakka þér samt kærlega fyrir viljann til að aðstoða.
Bestu kveðjur
Freyja
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.35 sek