Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Síðan og spjallið

Síðan og spjallið 02 nóv 2011 10:27 #12247

Skrifað 02 nóv 2011 10:27
Jæja, þá er þetta allt að komast í samt lag, smá bras eftir uppfærsluna að láta þræði birtast á forsíðunni en núna er þetta OK.

Og þá er hægt að læk-a og share-a og ég veit ekki hvað og hvað, bæði á greinar, fréttir og spjallþræðina.

Góðar stundir!

Re: Síðan og spjallið 02 nóv 2011 11:11 #12248

Skrifað 02 nóv 2011 11:11
Like á þig!

Skabbi

Re: Síðan og spjallið 02 nóv 2011 11:39 #12249

Skrifað 02 nóv 2011 11:39
Þetta lúkkar vel til að byrja með.....ánægður með framtakið, þið eigið lof og hrós skilið,

kv.Gimp

Re: Síðan og spjallið 02 nóv 2011 12:40 #12250

Skrifað 02 nóv 2011 12:40
Þetta er snilld, ég er búinn að like'a þessum þráði og "þakka fyrir" kommentið frá Gulla! Það er klárlega ekki hægt að biðja um meira!

Vel gert Gulli og Óli

Re: Síðan og spjallið 02 nóv 2011 21:03 #12257

Skrifað 02 nóv 2011 21:03
Gott mál að það sé ennþá verið að betur um bæta þessa síðu. Hvað er annars að frétta af skráningu leiða? Var það ekki ein helsta ástæða nýrrar heimasíðu á sínum tíma, þeas að bæta skráningu leiða?

Re: Síðan og spjallið 02 nóv 2011 23:17 #12261

Skrifað 02 nóv 2011 23:17
Knús á Gulla fyrir að græja þetta, má ekki gleyma því að hann og Óli Hrafn mössuðu þessa síðu á sínum tíma, fór örugglega fullt af vinnu í það.

Og +1 +1 +1 +1 +1 +1 +1 +1 á Berglindi.

Re: Síðan og spjallið 02 nóv 2011 23:35 #12262

Skrifað 02 nóv 2011 23:35
Gott mál. Spjallið lítur mun betur út.
Ég hljóma núna kannski eins og algjör norn en á sínum tíma þegar Gulli og Óli mössuðu síðuna, þá fengu þeir greitt fyrir það. Eitt af fáum verkum sem ég veit til þess að hafi verið greitt fyrir í þessum félagsskap.

kveðja.

Re: Síðan og spjallið 03 nóv 2011 00:23 #12265

Skrifað 03 nóv 2011 00:23
Bara til að það sé á hreinu þá fengu Gulli og Oli ekki greitt fyrir nýju uppfærsluna en þá fá hinsvegar kærar þakkir fyrir að græja þetta.

Takk strákar!

Re: Síðan og spjallið 03 nóv 2011 00:24 #12266

Skrifað 03 nóv 2011 00:24
Skráning leiða, Gummi ætti að geta frætt okkur eitthvað um stöðuna á því...?

Re: Síðan og spjallið 03 nóv 2011 08:54 #12271

Skrifað 03 nóv 2011 08:54
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir wrote:
Gott mál. Spjallið lítur mun betur út.
Ég hljóma núna kannski eins og algjör norn en á sínum tíma þegar Gulli og Óli mössuðu síðuna, þá fengu þeir greitt fyrir það. Eitt af fáum verkum sem ég veit til þess að hafi verið greitt fyrir í þessum félagsskap.

kveðja.


Það er rétt, tókum þetta að okkur fyrir minna en helming af þeim tilboðum sem stjórnin hafði fengið í verkið. Þegar upp var staðið þá vorum við búnir að eyða ekki tugum heldur hundruðum tíma í þetta.

Skil ekki hvað þú ert að ýja að en vil að það sé á hreinu að stjórnin ætlaði að greiða fyrir uppfærslu á heimasíðunni. Við lögðum síðan síðan út fyrir vinnu 3ja aðila við útlit sem og að kaupa ákvðena módúla fyrir síðuna. Þegar upp var staðið var tímakaupið ekki hátt.

Re: Síðan og spjallið 03 nóv 2011 14:13 #12273

Skrifað 03 nóv 2011 14:13
Fínt að síðan sé poppuð upp, -greinilegt að umferðin margfaldaðist.

-Eg skil nú innslag Sveinbjargar ekki sem aðfinnslu eða neikvæðni, hún er eingöngu að veita upplýsingar sem ágætt er að komi fram.
Ekkert óeðlilegt að kostnaður sé af heimasíðunni.

Re: Síðan og spjallið 03 nóv 2011 20:19 #12280

Skrifað 03 nóv 2011 20:19
Sæl öll sömul,

Frábært að heyra að fólk sé ánægt með breytingarnar :) Þessi vinna er ekki lokið svo þið vitið og munu þið sjá fleirri jákvæðar breytigar koma framm á næstu misserum.

Varðandi skráningu nýrra leiða þá er verið að vinna í því. En það er flókið verk svo endilega verið þolimóð :) Sem bráðarbyrgðar úrræði, þá megið þið endilega setja inn þessar upplýsingar á "nýjar leiðir" þráðinn sem var stofnaður fyrir svolitlu síðan. Til að það sé einfaldara fyrir ykkur að finna þetta, þá setti ég inn link neðst í "Aðalval" hérna til hliðar svo það sé auðveldara að finna þetta. Ég mun svo einnig setja inn nýskráningu fyrir klettaleiðir eftir smá.

Kv.
Arnar

Re: Síðan og spjallið 03 nóv 2011 20:50 #12281

Skrifað 03 nóv 2011 20:50
Nú erum við að tala saman.

*Klapp á bakið.

Re: Síðan og spjallið 05 nóv 2011 16:19 #12288

Skrifað 05 nóv 2011 16:19
Nýjar forsíðumydir eru komnar inn sem munu príða forsíðuna á næstunni, einnig er gott safn af gömulm og góðum.

Skemmtileg viðbrögt frá því að ég auglýsti eftir forsíðumyndum og nú hafa nokkrir sent mér myndir. Frábært mál!
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Síðan og spjallið 07 nóv 2011 22:48 #12294

Skrifað 07 nóv 2011 22:48
gaman að fá nýjar forsíðumyndir :)

myndin í dag af andra og steppó er alveg ótrúlega skemmtileg.
Notendur sem þakka:: Freyr Ingi Björnsson

Re: Síðan og spjallið 08 nóv 2011 11:18 #12298

Skrifað 08 nóv 2011 11:18
Þetta eru fínar breytingar. Ég tek svo undir með Berglindi og Sissa um mikilvægi þess að nýskráningu leiða sé komið í ásættanlegt horf. Það er gott til þess að vita að verið sé að vinna í því máli.

Kveðja,
AB

Re: Síðan og spjallið 09 nóv 2011 15:14 #12303

Skrifað 09 nóv 2011 15:14
Umræðan byrjaði með að hér væri ekki nógu mikið líf. Þyrfi að breytast til að líkjast facebook með öllum sínum „like“um og vinsældakosningu.

Ég hef áður bent á að fara varlega í breytingar á heimasíðum. A.m.k. á síðum sem eru sæmilega lifandi og einhver umræða á sér stað.

Síða Landsbjargar og HSSR eru góð dæmi. Þar blómstraði oft á tíðum mjög lífleg umræða. Steindauðar síður í dag sem engin lítur á. Allt í kjölfar „fancy“ breytinga. Ekkert spjall, engin skoðanaskipti.

Megin galli breytinganna núna er hversu fáir þræðir eru á forsíðunni. Þræðirnir hverfa þarmeð mjög fljótt út af henni. Fólk sem ekki er stöðugt á síðunni missir af umræðum (þráðum) og hún deyr sjálfkrafa út. Að þessu leyti náum við að líkjast facebook vel a.m.k. helsta galla facebook. Mikil afturför að mínu mati og þyrfti að breyta.

Kv. Árni Alf.

Re: Síðan og spjallið 09 nóv 2011 16:51 #12304

Skrifað 09 nóv 2011 16:51
Við ættum að geta breytt þessu í hvelli Árni.

Re: Síðan og spjallið 09 nóv 2011 19:09 #12306

Skrifað 09 nóv 2011 19:09
Ekki lengi verið að kippa hlutunum í lag á þessum bæ. Frábært drengir.

Kv. Árni Alf. nöldurseggur

Re: Síðan og spjallið 14 des 2011 16:02 #12493

Skrifað 14 des 2011 16:02
Mjög góðar breytingar á spjallinu.

Nú er fólk duglegt að setja inn myndir í spjallþræðina. Það er samt þannig að til þess að sjá myndirnar þarf fólk að vera skráð inn. Er það ekki óþarfi? Væri ekki skemmtilegra ef allir gætu séð fallegu myndirnar okkar. Líka leiðinlegt að þurfa alltaf að skrá sig inn.

kv.
Steinar

Re: Síðan og spjallið 15 des 2011 14:26 #12502

Skrifað 15 des 2011 14:26
Sammála Steinari. Er nokkuð fengið með því að loka sig af? Held að það hafi bara þveröfug og neikvæð áhrif. Svo nennir maður ekki að logga sig inn.

Kv. Árni Alf.

Re: Síðan og spjallið 16 des 2011 09:15 #12515

Skrifað 16 des 2011 09:15
Ég breytti þessu eiginlega um leið og Steinar póstaði þessu.

Re: Síðan og spjallið 20 des 2011 19:40 #12558

Skrifað 20 des 2011 19:40
Hvernig finnur maður eldri umræður en þær sem birtast á forsíðunni? Ef ég klikka á "fleiri þræðir" koma bara upp tveir nýjustu þræðirnir. Var t.d. að leita að umræðunni um gufunesturninn áðan en gat engan veginn fundið inni á síðunni. Kom ekki upp í leitinni heldur. Með því að googla "gufunesturninn" fann ég þráðinn :)

kv. Berglind

Re: Síðan og spjallið 21 des 2011 10:06 #12564

Skrifað 21 des 2011 10:06
Ýmsar leiðir til þess. Getur smellt á Umræður í Aðalvalinu uppi vinstra megin, Umræður efst í hverjum þræði eða smellt á index eftir að hafa smellt á fleiri þræðir.

Væri samt mjög rökrétt að fleiri þræðir vísaði yfir á umræður index.

Re: Síðan og spjallið 21 des 2011 13:25 #12567

Skrifað 21 des 2011 13:25


Ég get leitað vandræðalaust, flipi sem á stendur "Search" þegar maður smellir á "Umræður" hérna vinstra megin.

Skabbi

Re: Síðan og spjallið 21 des 2011 15:56 #12570

Skrifað 21 des 2011 15:56
Takk fyrir ábendingar. Kann núna að leita. Hins vegar virkar flýti-leitarstikan "leita" efst til hægri á síðunni ekki.

kv. Berglind
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.58 sek