Langaði bara að segja frá því að ég skrapp í bíltúr upp í Tindfjöll um helgina og hitti þar tvo hörkuduglega Ísalpara. Þeir voru að sinna ýmsum þörfum verkum við húsin okkar tvö, bæði skítadjobbum og málningarvinnu. Þetta voru skálaumsjónarmennirnir okkar, þeir Hálfdán og Kristján, ef ég veit rétt. Þeir eru að vinna þarna flott starf við að halda þessum frábæra skála þannig að okkur sé sómi að. Vil líka hvetja Ísalpara til að nota skálann meira, þarna er gott að vera bæði sumar og vetur og aðstaðan með því besta sem gerist í fjallaskálum á Íslandi.
mbk, Atli