Er aðeins að velta fyrir mér staðsetningum á þessu slysi, þetta er væntanlega ekki klassíski íshellirinn í Kverkfjöllum sem erlendi leiðsögumaðurinn lést fyrir framan í sumar, hann er náttúrulega í göngufæri við bílastæðið.
Eru hellar þarna uppi á neðra hverasvæðinu, voru þessir ferðamenn þar? Einhver sem er inni í þessu?
Annars mætti nú alveg koma þeim skilaboðum skýrar á framfæri að fólk ætti einfaldlega ekki að koma nálægt íshellum í hjaðnandi jöklum. Enski textinn á skiltinu við stóra íshellinn í Kverkfjöllum (eftir dauðaslysið) var: "Beware of falling ice" ef ég man rétt. Mætti nú alveg taka sterkar til orða. Sama gildir uppi í Skeri og á Sólheimajökli (er ekki hellir þar ennþá annars?)
Sissi