Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Aðstæður á Laugaveginum

Aðstæður á Laugaveginum 30 jún 2011 08:04 #12003

Skrifað 30 jún 2011 08:04
Ég ætla að fara að arka Laugavegin eftir viku og vildi forvitnast hvort að einhver viti um aðstæður þar núna hvað varðar færð og þá aðallega snjó og kulda?

Er allavega búinn að heyra að það sé þó nokkur snjór í kringum Hrafntinnusker en annars ætti þetta að vera þokkalegt.
En ég ætlaði mér að gista í tjaldi fyrir utan Hrafntinnusker þar sem ég þori ekki öðru en að vera í skála þar sem maður er ekki svo vel stæður að eiga jöklatjöld og búnað.

Re: Aðstæður á Laugaveginum 30 jún 2011 12:39 #12005

Skrifað 30 jún 2011 12:39
Það er náttúrulega tóm vitleysa fyrir fullfrískann ungann mann að gista í Hrafntinnuskeri. Þú labbar bara snemma af stað, skoðar þig um í Hrafntinnuskeri þegar þú kemur þangað, töltir á Háskerðing og endar síðan fyrsta daginn í Álftavatni. Þá ertu kominn með þægilegann göngudag og ert ekki að eyða heilum 4 dögum í þetta.

Þannig sé ég það allavega :)
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.24 sek