Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Útivist er fyrir ALLA..

Útivist er fyrir ALLA.. 22 jún 2011 19:43 #11966

Skrifað 22 jún 2011 19:43
Langaði að benda mönnum á nýjan þátt Spenna.is á MBL.is Sjónvarpi
Þar er rætt við Leif sem hefur alla tíð verið í hjólastól en lætur það ekki stoppa draum sinn um að fara sjálfur uppá fjöll!

Maður getur ekki annað en tekið að ofan fyrir svona snillingum!

Þáttinn má sjá hér
Festuða á filmu!
www.spenna.is :: www.mons.is

Re: Útivist er fyrir ALLA.. 22 jún 2011 22:53 #11967

Skrifað 22 jún 2011 22:53
Frábært framtak. Leifur hittir naglann á höfuðið. Menn eru allt of oft að setja fyrir sig smáatriði eins og ekki nógu góður búnaður eða að líkamlega atgervið sé ekki nógu gott eða „rétt“ sem afsökun fyrir að fara ekki á fjöll.

Ekki fyrir svo löngu síðan var ég að pakka niður Smjörvastykki fyrir Hnjúksferð (á vegum ÍFLM). Ívar „alltofgranni“ hafði það á orði við útlendinga sem horfðu upp á þetta; „ you see, Árni has to keep his figure “ .

Auðvitað eiga menn ekki að vera í lélegu formi en gamlir fjólubláir Skarpa skór og bumban út í loftið eiga ekki að aftra mönnum frá því að stunda útivist.

Er mjög ánægður að sjá hvað þetta ævintýri Leifs hefur gengið vel. Seinni part vetrar benti ég á Jóa Kjartans stálskipa- og þúsundþjalasmið í sambandi þetta verkefni . Svo virðist sem Jóhann hafi leyst tæknilega hlið málsins og á miklar þakkir skyldar.

Þess má geta að sami snillingur hannaði skíðasleðana (skíðapúlkur) sem hafa sannað sig í gönguskíðaferðum og mikil eftirspurn er eftir.

Kv. Árni Alf.

P.S. Við getum alveg tekið aðra púlkuumræðu ef Ívar er spenntur.

Re: Útivist er fyrir ALLA.. 23 jún 2011 11:49 #11973

Skrifað 23 jún 2011 11:49
Var þetta 500gr smjörstykki? Mér leikur forvitni á að vita af hverju þú smurðir ekki áður en lagt var í hann, og/eða hvað þú varst að gera með svona stykki. Kannski hafði Ívar rétt f. sér eftir allt saman?

kv.Einn sem er voða forvitinn um tilburð þessa smjörstykkis

PS: annars hef ég sagt það oftsinnis áður að það skiptir öllu að líta vel út á fjöllum....þú hefur klárlega ekki séð White Man Can´t Jump hér um árið Árni, eða?

Re: Útivist er fyrir ALLA.. 24 jún 2011 17:53 #11976

Skrifað 24 jún 2011 17:53
Það þótti alltaf gott að hafa smá smjörklípu meðferðis þegar fé var heimt af Fjalli. Í dag er Smjörvastykki það sem venulega er handhægast og við hendina.

Það þótti aldrei gott þegar fé féll úr hor. Mannfólkið fylgdi gjarnan í kjölfarið.

Kv. Árni Alf.

P.S. Nei, hef ekki séð þessa mynd.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.21 sek