Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: GPS hnit á Snæfellsjökul?

GPS hnit á Snæfellsjökul? 08 jún 2011 09:42 #11922

Skrifað 08 jún 2011 09:42
Góðan daginn,

við erum á leið á Snæfellsjökul á fjallaskíðum næstu helgi. Býr einhver svo vel að vera með GPS hnit fyrir gönguna?



Með fyrirfram þökk

kkv hrund

(gsm 8956371)

Re: GPS hnit á Snæfellsjökul? 08 jún 2011 11:00 #11923

Skrifað 08 jún 2011 11:00
Sæl Hrund

GPS hnit og aðrar leiðarupplýsingar er hægt að nálgast víða. Ég nefni sem dæmi síðuna Wikiloc (www.wikiloc.com). Þar má finna GPS ferla (track) sem notendur hafa hlaðið inn til að geta sannað fyrir vinum sínum hvað þeir eru víðförlir. Ég fór til að mynda upp á Snæfellsjökul 28. maí og hér: www.wikiloc.com/wikiloc/view.do?id=1730914 má nálgast ferilinn minn á wikiloc. Þú getur halað þessu niður og opnað í tilheyrandi GPS forriti (t.d. MapSource fyrir Garmin tæki) og jafnvel búið til GPS punkta eða nota ferilinn til viðmiðunar. Þetta er svipuð eða nánast sama leið og troðarinn fer þegar hann fer upp á topp. Þessa leið er ágætt að skíða eins og snjórinn nær. Ætla ekki að fullyrða hvort þetta er besta skíðaleiðin á Snæfellsjökli.

Ég ætla samt að ítreka að GPS gögnum af netinu á maður alltaf að taka með fyrirvara. Þau henta best til að hafa til viðmiðunar. Best er að velja leiðina með almennri skynsemi þegar á staðinn er komið, en ekki treysta blindandi á tölur úr tækinu...nema skyggnið sé afleitt auðvitað.

Kveðja og góða ferð.
Raggi Þ.

Slóðir
www.wikiloc.com
www.wikiloc.com/wikiloc/view.do?id=1730914hér
\"There are only 3 real sports: bull-fighting, car racing and mountain climbing. All the others are mere games.\"

-Hemingway

Re: GPS hnit á Snæfellsjökul? 10 jún 2011 20:07 #11931

Skrifað 10 jún 2011 20:07
Sæll Raggi

Kærar þakkir fyrir þetta!


allra bestu

hrund
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.28 sek