Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Öskuvellir

Öskuvellir 22 maí 2011 22:23 #11861

Skrifað 22 maí 2011 22:23
Frábær helgi á Hnappavöllum. Dauðalogn og sólskin. Lágum í sólbaði eftir gott klifur á laugardagskvöld þegar mökkurinn gerði vart við sig.
Fjör færðist síðan í leikana upp úr kl. 10 þegar mökkurinn nálgaðist óðfluga eins og myndin sýnir. Augnarbliki síðar hvarf allt í myrkri í þéttri öskunni sem féll látlaust í logninu. Það var hreinlega hlaupið í skjól í Tóftina og dvalið í henni í nótt. Hún kom sér svo sannanlega vel.
Dapurlegt umhorfs á Völlunum í morgun. Ekki síst að sjá aumingja dýrin. Hressandi keyrsla heim via Egilstaðir og Blönduós...

img692.imageshack.us/img692/6646/askac.jpg

img705.imageshack.us/img705/610/billd.jpg

Re: Öskuvellir 23 maí 2011 22:37 #11864

Skrifað 23 maí 2011 22:37
Fyrsta vaktin í Skaftafelli varð endasleppt að þessu sinni. Komum í bæinn í dag eftir að hafa rýmt Guantanamo í gær og svo ekið löngu leiðina heim með næturstoppi á AK. Hér eru nokkrar myndir úr Skaftafelli sem sýna upphaf gossins og svo hvernig þetta þróaðist.

Re: Öskuvellir 24 maí 2011 10:39 #11865

Skrifað 24 maí 2011 10:39
töff myndir

Re: Öskuvellir 24 maí 2011 12:18 #11867

Skrifað 24 maí 2011 12:18
Já frekar dapurlegt ástand fyrir austan. Flottar stemningsmyndir. Takk fyrir að deila.

Re: Öskuvellir 27 maí 2011 15:09 #11885

Skrifað 27 maí 2011 15:09
Rendi á Hnappavelli. Varla hægt að sjá merki um eldgos og öskufall nema hvað það er smá ryk inni í Tóftinni.

Góðar stundir.

Softarinn
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Öskuvellir 30 maí 2011 10:44 #11890

Skrifað 30 maí 2011 10:44
Takk f. það Ivar...gott að vita, nú þarf maður bara að vona að veðrið verði f. austan um helgina.

Himmi

Re: Öskuvellir 31 maí 2011 17:23 #11904

Skrifað 31 maí 2011 17:23
Mundu samt eftir tvistunum, spara skrímerana! :)
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.36 sek