Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Öræfin

Öræfin 22 maí 2011 18:48 #11858

Skrifað 22 maí 2011 18:48
jæja... býst við að slatti af Ísölpurum hafi verið í námunda við Skaftafell þegar gos hófst, og eru þá væntanlega fastir þar!

Er askan ekki að leggjast yfir Hnjúkinn, Hnappavelli, Svínafellsjökul o.s.frv?

Re: Öræfin 24 maí 2011 23:55 #11872

Skrifað 24 maí 2011 23:55

Re: Öræfin 30 maí 2011 12:58 #11893

Skrifað 30 maí 2011 12:58
Fór einhver á Hnjúkinn um helgina? Er búið að snjóa yfir öskuna á toppnum/sléttunni?

kv Stefán

Re: Öræfin 03 jún 2011 18:48 #11910

Skrifað 03 jún 2011 18:48
var á hnúknum í gær og það er búið að snjóa yfir hnúkinn en er nokkuð grár.
Það er búið að snjóa nokkuð mikið í vetur og er hnúkurinn sjálfur nokkur auðveldur eins og staðan er núna.

Kv. Siggi

Re: Öræfin 03 jún 2011 21:20 #11911

Skrifað 03 jún 2011 21:20
Var á Hrútfjallstindum í dag. Færið var alveg eðal og veðrið eins og best var á kosið. Það er aska yfir öllu og skítugi snjórinn verður fljótt að drullu eftir hádegi. Töluvert er þó af nýjum snjó ofan við 1000 metra sem er þó að bráðna hratt. Lækir í Hafrafelli og Sandfelli eru hreinir og vatnið vel drykkjarhæft. Sveinborg sagði hins vegar að vatnið í Hnútudal sé skítugt.

Veðurspá næstu daga er flott þannig um að gera fyrir fólk að bruna austur að spræna upp tindana.

Kveðja úr Skaftafelli
Ági

Re: Öræfin 06 jún 2011 09:54 #11914

Skrifað 06 jún 2011 09:54
Það var prýðilegt á Hnappó um helgina, heyrði af hópum sem gerðu tilraunir við Þverártindsegg og Þumal amk.

Re: Öræfin 06 jún 2011 16:22 #11916

Skrifað 06 jún 2011 16:22
Eru Hnappavellir orðnir sæmilega öskuhreinir eða þarf maður að mæta með handryksuguna með sér þegar maður er á ferðinni?

Re: Öræfin 06 jún 2011 17:18 #11917

Skrifað 06 jún 2011 17:18
Það er ekki meira en svo að dótið manns var svona aðeins skítugt og maður náði að hlífa augunum með því að vera með sólgleraugu. Finnur örugglega ekki fyrir þessu í logni og varla að þetta böggaði mann neitt að ráði.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.33 sek