Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: BANFF stemmari

BANFF stemmari 17 maí 2011 21:06 #11846

Skrifað 17 maí 2011 21:06
Það seldist upp á banff sýninguna kl. 20 og verður því önnur sýning kl. 22.30 !
Allir sem komust ekki kl. 20 skuluð fara í skóna og flíspeysuna og skella sér í bíó !

-stjórnin
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: BANFF stemmari 18 maí 2011 00:32 #11849

Skrifað 18 maí 2011 00:32
Já... það er óhætt að segja að fyrra BANFF kvöldið hafi verið success. Það var uppselt eitthvað fyrir átta og því aukasýning klukkan 10:30 og stendur hún enn yfir. BANFF virðist komið til að vera í Bíó Paradís.

Myndefnið var ekki af verri endanum og hvert snilldarvideoið spilað af fætur öðru.Hvað fannst ykkur, var eitthvað sem stóð upp úr?

Ég á erfitt með að velja en held að Life Cycles (hágæða fjallahjólamynd með flottum skilaboðum) og Dreamresults (meira-en-jaðar straumkajaksnillingar). Svo var reyndar Ueli Steck ótrúlegur ásamt Alex Honnold en ég var búinn að sjá hluta af því.

En straumkajakararnir skildu einhvern vegin mest eftir og því er hér smá bútur úr því videoi:



"Do I know how big rafting is going to get? no I don't...People are gonnna get hurt...and thats unfortunate... but, thats the nature of human exploration" (shit hvað þetta er poetic)

Re: BANFF stemmari 18 maí 2011 09:46 #11850

Skrifað 18 maí 2011 09:46
Mér fannst The Asgard Project skemmtilegust og þar á eftir The Swiss Machine.
Ég svaf held ég yfir allri hjólamyndinni, það var líka komið fram yfir miðnætti!

Re: BANFF stemmari 18 maí 2011 11:16 #11851

Skrifað 18 maí 2011 11:16
Ég verð að segja að það eru jafnari og flottari myndir í ár en ég man eftir áður.

Fannst Asgard Project mögnuð, búinn að bíða eftir henni lengi, Lifecycles er hrikalega flott, snjóbrettamyndir var frábær og gaman að sjá Íslending algjörlega búinn að meika það (skil ekki sumt sem Halldór gerir og ótrúlega flottur stíll) og Swiss Machine er náttúrulega magnaður þó að Will Gadd myndi kannski segja "his sticks are shit" og sumt sem hann og Hannold voru að bauka leit út eins og stórslys í uppsiglingu. Ætti kannski að fara að slá aðeins af?

Anyhú, mér finnst samt pínu leiðinlegt að missa út ljósmyndasamkeppnina, ég var mjög hrifinn af þeirri hefð sem var að skapast að læða inn einni íslenskri mynd á ári. Skemmtilegra að ná því í bíó í staðinn fyrir að hittast í KH, eða alltaf á einhverjum mun minni event í það mál.

Síðast en ekki síst að maður hitti mjög lítið af fólki þar sem við vorum í sal 3. Alltaf gaman að sjá aðra og spjalla. Mætti kannski leysa það með því að hafa eitthvað smá event í hléi, happdrætti eða eitthvað, þjappa þessu aðeins saman?

Takk fyrir mig,
Sissi

Re: BANFF stemmari 18 maí 2011 12:42 #11852

Skrifað 18 maí 2011 12:42
Hæbb

Varðandi ljósmyndakeppnina að þá fannst okkur ekki nógu gott að halda hana þegar fólk er í sitthvorum salnum en við stefnum á að hafa hana síðar á árinu, ásamt meiru svipuðu góðgæti!
Sendum út fréttatilkynningu bráðlega þess efnis, en okkar kraftar hafa farið í BANFF síðustu misseri og ákváðum við að bíða með að skipuleggja keppnina þangað til hátíðin er búin.

-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: BANFF stemmari 18 maí 2011 13:47 #11853

Skrifað 18 maí 2011 13:47
Já gleiðilegt BANFF allir.

Finnst þetta ótrúlega gott kvöld í gær og þvílíkt af fólki. Fjöldavandamálið er nú sem betur fer eitt af þessum góðu vandamálum. Sammála Sissa um að hafa eitthvað smá event í hlé...eitthvað stutt og gott. Annars er þetta frábært mót, vel gert ÍSALP.

Hlakka til íslensku fjallamyndahátíðarinnar í haust.

Takktakk
Raggi
\"There are only 3 real sports: bull-fighting, car racing and mountain climbing. All the others are mere games.\"

-Hemingway

Re: BANFF stemmari 18 maí 2011 15:50 #11854

Skrifað 18 maí 2011 15:50
Til lukku með þrusu vel heppnað Banff. Rosalega gaman að sjá hvað aðsóknin var góð.
Banff er fyrir alla. Ekki bara klikkaða klikkhausa. Það eru jú allir sem láta sig dreyma ;)

Ég verð að segja að Life Cycles stendur uppúr. Er ennþá að hugsa um hana!
Hún var bara svo rosalega vel gerð. Össs.
Þar strax á eftir kemur Asgard Project, fyrir mission, og þvílíkt mission að mynda þetta svona vel.

Sammála með að stemmarinn er annar ef allir eru saman, það er stór partur af Banff.
Árið í ár, sannar að þetta á heima í stórum sal!
Ég lofa svo að það verður íslensk mynd að ári ;)

Til lukku allir!
Festuða á filmu!
www.spenna.is :: www.mons.is

Re: BANFF stemmari 19 maí 2011 14:43 #11856

Skrifað 19 maí 2011 14:43
Hvað fannst svo fóki um seinna kvöldið? Eitthvað sérstakt sem stóð uppúr þar? Hörku flottar skíða myndir og flottir þessir Long board hippar ;)
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.34 sek