Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Endursólun

Endursólun 14 maí 2011 19:58 #11835

Skrifað 14 maí 2011 19:58
Ég er með miðaldra hálfstífa gönguskó sem hafa reynst mér mjög vel en sólinn á þeim er orðinn full slitinn, en það er alveg nóg eftir af leðrinu ennþá. Sólinn er frá Vibram.
Veit einhver hvort hægt sé að fá skó endursólaða með Vibram sóla einhverstaðar hérlendis? Og ef ekki, mælið þið með einhverjum sérstökum skósmið/sólum og þá mögulega hugmynd um hvað þetta gæti kostað?

Re: Endursólun 16 maí 2011 13:18 #11837

Skrifað 16 maí 2011 13:18
Sæll!

Lét gera þetta við skó sem ég hafði tekið miklu ástfóstri við fyrir uþb ári síðan. Þráinn skóari gerði þetta fyrir mig, gerði það nokkuð vel og tók 12.000 kr fyrir sóla og vinnu.
Hinsvegar þá dóu skórnir nokkru síðar, saumar fóru að gefa sig og leðrið að brotna þannig að sennilega helst þetta nú nokkuð í hendur, ending á skóm og sóla. Ég amk sá eftir að hafa ekki bara keypt mér nýja skó strax eins og ég hef gert hingað til.

Það er svona þegar maður reynir að spara í kreppunni:-(

Re: Endursólun 16 maí 2011 20:16 #11838

Skrifað 16 maí 2011 20:16
Ég er einmitt í sömu sporum og Árni. Með hjartafólgna alstífaskó í höndunum sem mig langar til að endursóla. Nóg eftir af þeim held ég þó botn og einstakir saumar séu orðnir þreyttir.

Hef heyrt að menn séu að senda stífa skó til Þýskalands í endursólun.

Spurning um að smala saman skóm í sendingu til fagmannanna þar?
Ég býð mínum skóm alla vega í ferðalag ef þeir fá ferðafélaga.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.27 sek