Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Denali

Denali 09 maí 2011 12:10 #11807

Skrifað 09 maí 2011 12:10
Í dag legg ég ásamt Guðmundi Einari Halldórssyni af stað til Alaska. Ætlunin er að ganga á Denali 6194m, hæsta fjall norður ameríku. Við ætlum að hafa það fáránlega gott í þann mánuð sem við verðum úti, tíminn er nægur svo það er aldrei að vita að maður reyni ekki bara að skíða eitthvað skemmtilegt eða brölta eitthvað út frá 14000ft.

Styrktaraðilar ferðarinnar eru:

    Fjallakofinn með Scarpa, Marmot, Julbo, Smartwool, Helsport og Black Diamond Real Turmat Kostur Swiss Miss Corny Canon á Íslandi

Re: Denali 09 maí 2011 12:29 #11808

Skrifað 09 maí 2011 12:29
Glæsilegt, gangi ykkur vel piltar!

Re: Denali 09 maí 2011 12:36 #11809

Skrifað 09 maí 2011 12:36
May the Force be with you!

Re: Denali 09 maí 2011 14:48 #11810

Skrifað 09 maí 2011 14:48
Flottir strákar!

Gangi ykkur vel og komið heilir heim.

Endilega leyfið okkur hér á skerinu að fylgjast ef þið hafið færi á.

Re: Denali 10 maí 2011 12:12 #11813

Skrifað 10 maí 2011 12:12
Gangi ykkur vel, maður fær vonandi einhverjar fréttir af ykkur.

kv. Björk

Re: Denali 10 maí 2011 12:29 #11815

Skrifað 10 maí 2011 12:29
Næss, gangi ykkur vel.

Re: Denali 10 maí 2011 13:00 #11817

Skrifað 10 maí 2011 13:00
Lykkes

Re: Denali 10 maí 2011 13:06 #11818

Skrifað 10 maí 2011 13:06
Spennandi dæmi, gangi ykkur vel.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Denali 11 maí 2011 09:36 #11825

Skrifað 11 maí 2011 09:36
Góða ferð.

AB

Re: Denali 12 maí 2011 10:20 #11831

Skrifað 12 maí 2011 10:20
Snilld!

Re: Denali 17 maí 2011 10:43 #11844

Skrifað 17 maí 2011 10:43
Bon voyage....hlakka til að sjá myndir og heyra af ferðum ykkar þegar heim er komið.

Himmi

Re: Denali 24 maí 2011 23:21 #11871

Skrifað 24 maí 2011 23:21
Hvað er að frétta?

Re: Denali 25 maí 2011 23:43 #11875

Skrifað 25 maí 2011 23:43
Héðan er allt gott að frétta. Komnir í 14.000 fet, búnir að bíða af okkur mikla snjókomu í 4 daga en notuðum dagana til að renna okkur í fersku púðrinu. Ferðin búin að ganga annars glimrandi vel. Stefnum á að toppa á fimmtudag eða föstudag, fer svolítið eftir veðri.
Minni aftur á styrktaraðila ferðarinnar:

Fjallakofinn með Scarpa, Marmot, Julbo, Smartwool, Helsport og Black Diamond
Real Turmat
Kostur
Swiss Miss
Corny
Canon á Íslandi

Re: Denali 26 maí 2011 10:03 #11878

Skrifað 26 maí 2011 10:03
Þú lætur þetta hljóma eins og göngu í garðinum bara... taka smá púður ride fyrir hádegi, toppa svo eftir hádegi, ef veðrið er sæmó hehe.

Gangi ykkur vel og farið varlega. Hlakka til að heyra sögurnar og sjá myndirnar maulandi Corny og drekkandi Swiss Miss niðrí Skútuvogi :)

Já og farðu svo að tala í metrum drengur ;)

Re: Denali 26 maí 2011 11:43 #11880

Skrifað 26 maí 2011 11:43
Gaman að heyra af ykkur í góðum málum þarna drengir.

Stuðkveðjur!
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Denali 27 maí 2011 00:28 #11882

Skrifað 27 maí 2011 00:28
Farid varlega vinir
Var ad missa einn vin I snjoflodi rett hja ykkur
Fridjon

Re: Denali 27 maí 2011 14:14 #11883

Skrifað 27 maí 2011 14:14


Tek undir með þeim sem skrifa hér að ofan, góða ferð strákar en farið varlega í snjónum.

Allez!

Skabbi

Re: Denali 27 maí 2011 14:35 #11884

Skrifað 27 maí 2011 14:35
Góða ferð "frændi"

Re: Denali 29 maí 2011 22:36 #11888

Skrifað 29 maí 2011 22:36
las á annari vefsíðu að þeir hafi toppað Denali

"Þeir toppuðu 6.194 metrar (20.320 fet) í gær kl. 15 í snjókomu og kulda.
Gistu í 17.200 fetum (High Camp) í nótt og ætla í 14.200 í dag.
Þeir biðja að heilsa öllum."
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Denali 30 maí 2011 00:35 #11889

Skrifað 30 maí 2011 00:35
Nú jæja já... Ísalp síðan ekki nógu fín ha?

En ég segi bara til lukku félagar ef þið hafið toppað og góða ferð niður.

Re: Denali 30 maí 2011 10:44 #11891

Skrifað 30 maí 2011 10:44
annarri siður? og enginn linkur?

Re: Denali 30 maí 2011 12:50 #11892

Skrifað 30 maí 2011 12:50
Til lukku með áfangann drengir og gangi ykkur vel.

Re: Denali 30 maí 2011 19:43 #11894

Skrifað 30 maí 2011 19:43
Góð ábending Bjöggi, en þetta var trúlegast aðstandandi annars þeirra sem póstaði þessu á aðra síðu sem ég ætla ekki að nefna hér en síðasti stafurinn er acebook...

-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.62 sek