Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Lóndrangar á Snæfellsnesi

Lóndrangar á Snæfellsnesi 05 maí 2011 12:19 #11798

Skrifað 05 maí 2011 12:19
Nýttum veðurgluggan sem myndaðist á Snæfellsnesi á sunnudaginn og fórum uppá þennan formfagra tind. Spes klifur í vafasömu bergi með flottu útsýni í lokin :)

Myndir hér:

climbing.is/lesa_frett.php?id=166

Kv.
Arnar

Re: Lóndrangar á Snæfellsnesi 05 maí 2011 21:46 #11800

Skrifað 05 maí 2011 21:46
Fínar myndir hjá ykkur.

Gastu séð í hvernig aðstæðum skíðaleiðin af toppi Jökulsins og niður að Dagverðará er?
Þetta er leið sem menn fóru hér á árum áður, það var hægt að skíða niður á veg.
Ég átta mig ekki á því hvort að leiðin sjáist á myndunum ykkar.

Kv
Tommi Júl

Re: Lóndrangar á Snæfellsnesi 06 maí 2011 00:25 #11802

Skrifað 06 maí 2011 00:25
Sæll,

Það er ekki snjór fyrren komið er dáldið uppfyrir Arnarstapann á jökulhálsveginum sýndist mér og því ekki hægt að renna sér niður að þjóðveg. Sést kannski best á myndinni þar sem jökullinn er á bak við Adda hversu stutt snjórinn nær niður.

-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Lóndrangar á Snæfellsnesi 08 maí 2011 13:01 #11805

Skrifað 08 maí 2011 13:01
Frábærar myndir hjá ykkur.

Re: Lóndrangar á Snæfellsnesi 08 maí 2011 20:15 #11806

Skrifað 08 maí 2011 20:15
Blessaður Tommi. Hér er mynd sem ég tók af jöklinum frá Dagverðará í morgun. Snjórinn mætti alveg ná lengra niður.
Ég vel venjulega þessa leið á Snæfellsjökul. Gott að vera laus við stibbuna og óhljóðin í þessum fáranlegu vélsleðum á hefðbundnum leiðum.

JVS

  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.30 sek