Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Léttir svefnpokar

Léttir svefnpokar 26 apr 2011 11:30 #11767

Skrifað 26 apr 2011 11:30
Er að pæla í sumarpokum, einhverju úr dún sem pakkast niður í Nalgene og vigtar ekki neitt.

T.d. svona

Hefur einhver skoðanir á þessu?

Sissi

Re: Léttir svefnpokar 26 apr 2011 12:18 #11768

Skrifað 26 apr 2011 12:18
Mundi skoða Rab líka. Sérfræðingar í vönduðum dúnpokum. Eru með nokkra uberlétta eins og t.d.:

us.rab.uk.com/products/sleeping-bags/neutrino_2/neutrino-200.html

Re: Léttir svefnpokar 26 apr 2011 16:33 #11770

Skrifað 26 apr 2011 16:33
Mountain Equipment eru með mjög flotta línu af svefnpokum og þar á meðal mjög létta og pakkanlega poka.

www.mountain-equipment.co.uk/the_gear/down_sleeping_bags/

Re: Léttir svefnpokar 26 apr 2011 21:10 #11773

Skrifað 26 apr 2011 21:10
Sælir, Skemmtileg umræða!

Ég hef verið að notast við poka frá Marmot (Helium Membrain) sem mér líkar mjög vel við. Hann er gefinn upp fyrir -9'C í Comfort og vegur aðeins 1050gr.

Kveðja,
Jón Smári

marmot.com/products/helium_membrain?p=117,71

Re: Léttir svefnpokar 27 apr 2011 12:46 #11777

Skrifað 27 apr 2011 12:46
Keypti Mountain Equipment Xero 550 sl. vetur, vegur 950g og er -6 í comfort. Frábær poki fyrir minimalista, nota hann mikið í vinnunni. Marmot Helium hafa einnig verið að koma vel út, meiri vetrarpoki.

www.mountain-equipment.co.uk/the_gear/down_sleeping_bags/xero/xero_550_-6%C2%B0c---466/

Re: Léttir svefnpokar 27 apr 2011 13:23 #11778

Skrifað 27 apr 2011 13:23
Ég, Siggi Skarp og fleiri höfum verið að nota forláta Open Air poka úr rúmfatalagernum síðustu árin í sumarferðirnar. Hann pakkast niður í ca. nalgene en er alveg drullukaldur gerfiefnapoki.

Sýnist flest hérna vega meira en þessi Phantom (550gr/5° Comfort), en það er náttúrulega pínu knappt á köldum nóttum :)

En já, góð umræða, gaman að spá í dóti.

Sissi

Re: Léttir svefnpokar 27 apr 2011 13:51 #11779

Skrifað 27 apr 2011 13:51
Keypti fyrir nokkrum árum í Everest, Vango, Venom 150. Fisléttur og pakkast vel en eftir á að hyggja hefði verið gott að fjárfesta í breiðara comfort zone, finnst þessi full kaldur (comfort 11°C, limit í 7°C, extreme -7°C).

JB

vango.co.uk/sleeping-bags/venom-150.html

Re: Léttir svefnpokar 28 apr 2011 03:10 #11782

Skrifað 28 apr 2011 03:10
www.backcountry.com/stoic-vamp-15-sleeping-bag-15-degree-down

Smá hugmynd bara. Þessi poki er 1kg. Á mjög góðu verði, fær fína dóma og á að vera fínn kringum núllið.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.34 sek