Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Aðstæður á Eyjafjallajökli

Aðstæður á Eyjafjallajökli 13 apr 2011 18:45 #11717

Skrifað 13 apr 2011 18:45
Hefur einhver farið nýlega á Eyjafjallajökul? Ég er að fara með hóp þangað um helgina og var að spá hvort hann væri "kominn í lag" eða hvort hann væri allur sundursprunginn.

-Árni

Re: Aðstæður á Eyjafjallajökli 13 apr 2011 23:16 #11718

Skrifað 13 apr 2011 23:16
Sæll

Eg hef nú reyndar ekki farið þangað síðan í leitinni að Þjóðverjanum, en þá gengum við fram á eitthverjar stærstu sprungur sem ég hef séð, en vorum reyndar ekki á neinni venjulegri leið.

En það varð þarna eldgos fyrir stuttu sem bræddi stærðar gat í jökulinn. Nú hefur ísinn allskonar tækifæri til að renna í áttir sem hann hefur hingað til ekki getað.

Eg myndi segja að það sé vissara að taka engu sem sjálfsögðu og hafa allan vara á, sérstaklega ef ekki er um vanann hóp að ræða.

Eyjafjallajökull er að ganga í gegnum breytingar og því fylgja nýjar hættur.

Endilega póstaðu eftir ferðina hvers þú verður vísari.

Atli Páls.

Re: Aðstæður á Eyjafjallajökli 14 apr 2011 10:29 #11719

Skrifað 14 apr 2011 10:29
Ég gekk nýlega á jökulinn frá Seljavallalaug og komum upp hrygginn suðaustan við Hámund og Guðnastein. Það var skemmst frá því að segja að við urðum varla varir við eina einustu sprungu. Við sáum móta fyrir þeim en þær virtust allar kjaftfullar af foksnjó og hugsanlega ösku. Við gengum frá Hámundi og Guðnasteini á fellið sem hefur myndast á gígbrúninni fyrir sunnan gíginn og síðan á Goðastein og það var sama sagan, hvergi eina einustu sprungu að sjá. Við gengum einni ofan í sjálfan gíginn(niður á barminn þar sem rauk úr) og allt í góðu þar og var mjög gaman að koma þar sem nýtt land er og finna hversu heitir steinarnir eru þar. Við gengum aftur niður af jöklinum vestan við Guðnastein og vorum rétt austan við stóra rás sem hefur myndast við flóð úr jöklinum og það var sama sagan, hvergi snjó að sjá.

Re: Aðstæður á Eyjafjallajökli 14 apr 2011 10:38 #11720

Skrifað 14 apr 2011 10:38
Sorry síðustu 4 orðin hér að ofan áttu að vera:Hvergi sprungu að sjá Það skal hins vegar tekið fram að það skal alltaf hafa fulla gát á þegar gengið er á jökul.

Re: Aðstæður á Eyjafjallajökli 14 apr 2011 11:32 #11721

Skrifað 14 apr 2011 11:32
Ég fór á jökulin vestanfrá í desember. Hann var sprungnari en venjulega en lítið mál að þræða góða leiðí björtu. Stærstu sprungurnar sem enn voru opnar í desember voru ofarlega að sunnan og betra að fara norðan þeirra, svipaða leið og yfirleitt er farin.

Re: Aðstæður á Eyjafjallajökli 14 apr 2011 12:32 #11722

Skrifað 14 apr 2011 12:32
Einu stóru breytingarnar eru eins og Þorvaldur nefnir, ofan í gígskálinni sjálfri og svo rásin niður sunnan megin. Langvarandi sunnanáttir í vetur hafa skammtað jöklinum vel af snjó. S.l vor meðan á gosinu stóð var jökullinn reyndar óvenju sprungulítill. Öskuflóð sunnan í jöklinum s.l. sumar voru hins vegar áhugaverð. Eflaust ekkert óvitlaust að hafa í huga þetta mjög þykka öskulag þegar fer að hlána verulega á jöklinum.

Kv. Árni Alf.

P.S. Ath. að sprungulítið í þessu tilviki þýðir ekki að það séu ekki sprungur til staðar heldur að þær séu lokaðar af snjó.

Re: Aðstæður á Eyjafjallajökli 14 apr 2011 12:56 #11723

Skrifað 14 apr 2011 12:56
Glæsilegt. Þakka kærlega fyrir góð svör.

Re: Aðstæður á Eyjafjallajökli 15 apr 2011 22:33 #11724

Skrifað 15 apr 2011 22:33
Talandi um Eyjafjallajökul, þá datt ég óvart inn í stórglæsilegan þátt um eldgos á Íslandi á National Geographic Channel rétt í þessu.
Þátturinn heitir Into Iceland´s Volcano og sýnir flottar grafískar útskýringar af kvikuflæði undir eldfjöllunum og magnaðar landslagsmyndir víða að á Íslandi.
Mæli meðessu!

PS Fann þáttinn á kickasstorrents.com fyrir áhugamenn um öryggisafrit af stafrænu efni...
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.43 sek