Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ævintýri á Öræfajökli

Ævintýri á Öræfajökli 27 mar 2011 16:30 #11665

Skrifað 27 mar 2011 16:30


Hlakka til að heyra af afrekum þeirra sem áttu förin sem við skíðuðum yfir á leið okkar af Hnúk og niður Svínafellsjökulinn.

Giska á að ferðinni hafi verið heitið á Kirkjuna, er það rétt?

kv.
Ívar

P.s.
Allt lítur hrikalega vel út í Öræfunum núna, fjöllin biðja bókstaflega um að einhverjir komi með axir eða skíði og leggi fallegar línur.
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Ævintýri á Öræfajökli 27 mar 2011 20:53 #11666

Skrifað 27 mar 2011 20:53
Rétt er það, 10 manns toppuðu Tindaborgina í gær með Olla í fararbroddi. Gekk eins og í sögu en það tók sinn tíma að koma öllum upp, sólarhringsferð í heildina.

Sáum skíðaförin á bakaleiðinni, ekki amalegt að nýta þetta frábæra færi.

Setjum inn nánari ferðasögu fljótlega.

Re: Ævintýri á Öræfajökli 27 mar 2011 21:16 #11667

Skrifað 27 mar 2011 21:16
Já það eru flottar aðstæður

Á myndinni sést útsýnið af Tindaborginni á Hnúkinn í gær

w_GFJ3617.jpg
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Ævintýri á Öræfajökli 29 mar 2011 12:02 #11674

Skrifað 29 mar 2011 12:02
fyrir áhugasama að þá eru komnar myndir inná www.climbing.is úr Tindaborgarferðinni um helgina

-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Ævintýri á Öræfajökli 29 mar 2011 13:14 #11675

Skrifað 29 mar 2011 13:14
Hrikalega flottar myndir, skál fyrir ykkur.

Smári

Re: Ævintýri á Öræfajökli 29 mar 2011 15:14 #11676

Skrifað 29 mar 2011 15:14
Töff stöff Gummi!

Þetta hefur verið eðaldagur greinilega.

Re: Ævintýri á Öræfajökli 29 mar 2011 19:38 #11677

Skrifað 29 mar 2011 19:38
Dísus þið farið alveg með mig, bæði kirkjan og þessi helv. skíðaleið eru búnar að vera á listanum alla þessa öld, þetta er skandall.

Geðveikar myndir eins og venjulega Gummi, mega næs.

Sissi

Re: Ævintýri á Öræfajökli 29 mar 2011 20:01 #11679

Skrifað 29 mar 2011 20:01
Mega flottar myndir hjá ykkur Gummi. Þið klikkið ekki!
Sissi nú er tækifærið að fara. Tindaborgin(Kirkjan) er í nokkuð auðveldari aðstæðum núna heldur en 2007. Við skildum eftir tvær skrúfur til að síga niður á. Eina 30m frá topp og eina á blá toppnum. Er ekki málið að nýta þær. Mundu Carpe Diem!!

Re: Ævintýri á Öræfajökli 29 mar 2011 20:04 #11680

Skrifað 29 mar 2011 20:04
VÓ! Flottar myndir hjá þér Gummi, Íslands-söknuðurinn gýs alveg upp!

Re: Ævintýri á Öræfajökli 29 mar 2011 20:54 #11681

Skrifað 29 mar 2011 20:54
"skildum eftir tvær srkúfur" Ég hef grátið mig í svefn í margar vikur yfir þessum ör fáu sem ég hef tapað!
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Ævintýri á Öræfajökli 29 mar 2011 21:21 #11682

Skrifað 29 mar 2011 21:21
Klukkan var orðin svo margt og myrkur að skella á. Skrúfan sem ég skildi eftir var gamall rússi(títaníum) sem ég hafði ekki notað í meira en 17 ár þannig að það var ekki mikil eftirsjá í henni. Ég kom með hana sérstaklega til að skilja hana eftir ef maður þyrfti.

Re: Ævintýri á Öræfajökli 30 mar 2011 00:23 #11683

Skrifað 30 mar 2011 00:23
Ívar, þú joggar nú þarna upp og sækir þessar skrúfur, þaggi? Síðan er helvíti flottur cam í Tjaldinu sem hefur komið hærra en flestir Íslendingar.

Að lokum minnist ég þess að hafa séð hvítan Fruit of the Loom bol á Hraundranga, spurning um að taka hann bara í leiðinni. Fyrstur kemur fyrstur fær.

Olli - já, myndi ekki hata það!

Sissi

Re: Ævintýri á Öræfajökli 30 mar 2011 08:16 #11684

Skrifað 30 mar 2011 08:16
Æ, held ég sé ekki að skokka þarna upp fyrir rússa, en bolurinn er annað mál. Hvaða stærð var hann?
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Ævintýri á Öræfajökli 30 mar 2011 10:48 #11686

Skrifað 30 mar 2011 10:48
Hann er medium, stórglæsilegt eintak

Re: Ævintýri á Öræfajökli 30 mar 2011 13:15 #11687

Skrifað 30 mar 2011 13:15
Setti inn nokkrar myndir frá Öræfajökli sem voru teknar um helgina (Skíðaleið niður svínafellsjökulinn og fleira):
picasaweb.google.com/gudjonbj/HnukurIISvinafellsjokull#

Myndirnar eru ekki í sama klassa og hjá Gumma (maður hálf skammast sín að pósta myndum á eftir þeim). En myndirnar ættu að gera ágæta hugmynd um aðstæður á jöklinum.

Myndirnar eru samansafn frá Ívari, Sigga Skarp, Gísla Símonar og mér.

Re: Ævintýri á Öræfajökli 30 mar 2011 13:39 #11688

Skrifað 30 mar 2011 13:39
Flott ferð hjá ykkur, skemmtileg myndasería og sérstaklega gaman að fá þetta sjónarhorn í sprungunum.

Aldrei að skammast sín fyrir að pósta myndum hérna þó það væri ekki nema símamyndir til að sína aðstæður ;)

Re: Ævintýri á Öræfajökli 30 mar 2011 13:54 #11689

Skrifað 30 mar 2011 13:54
Skrúfan sem varð eftir á toppnum var sko enginn rússi, þar stendur núna útúr klakanum sveifin á 25 cm Petzl ekki ódýrasta sort. En þessa góðu skrúfu á ég ekki lengur því Magnús sem var með okkur í för keypti hana af mér eftir að við komum í hús. Hafði verðgildið rýrnað aðeins því hann greiddi fyrir með aðeins styttri Petzl með sveif. :)
ööö við nánaru hugsun ... sko ég hlít að hafa verið prettaður í þessum kaupum því skrúfa í toppnum á Tindaborg er örugglega rándýr er það ekki? .... hmmmm :D

Re: Ævintýri á Öræfajökli 30 mar 2011 14:47 #11690

Skrifað 30 mar 2011 14:47
Það var gott að ekki var skilinn eftir eðalmálmur sem mölur og ryð fá ekki grandað!
Þeir sem halda því fram að títaníum skrúfur bíti illa er sauðirnir sem föttuðu ekki að það þarf að brýna öll eggjárn, -sam hvort þau heita skíði, skautar, sporjárn, axir eða skrúfur.....
Auðveldast er að brýna skrúfur með þrihyrndri þjöl þar sem búið er að sljóvga eitt horn þjalar á smergeli. Það tekur mínútu að brýna títaníum skrúfu en allt að 5 mín að brýna stálskrúfu. Bitið endist líka 5X lengur í stálskrúfunni.
Ný brýnda títanskrúfu má skrúfa í gegnum 2" þykka fjöl með annari hendi.

Re: Ævintýri á Öræfajökli 30 mar 2011 15:17 #11691

Skrifað 30 mar 2011 15:17
Kalli!
Á góðum stálskrúfum er bolurinn mikið betur unninn(þ.e. sleipari) þannig að það er minna viðnám þegar skrúfað er inn. Ég hef alla vega ekki viljað vinna mikið með títaníum skrúfur eftir að ég fór að hanga(í fetlum) á annarri hendinni við setja inn skrúfur. Það er bara seinlegra sama þó maður brýni þær vel og maður pumast meira út.

Re: Ævintýri á Öræfajökli 30 mar 2011 18:00 #11692

Skrifað 30 mar 2011 18:00
Fyrir virði um tveggja góðra ísskrúfa (og um 20 títaníum rússa) getur Hardcore kennt ykkur v-þræðingu og önnur sniðug ísklifurtrix.

Námskeiðið heitir Ísklifur I og Hardcore mælir með því að þið mætið. Gæti sparað ykkur stórfé í framtíðinni.

kv.
Hardcore (skrásett vörumerki)

P.s. Hardcore mælir ekki með titanium ísskrúfum, þær eru álíka cool púlkurnar hans Kalla.
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Ævintýri á Öræfajökli 31 mar 2011 12:49 #11696

Skrifað 31 mar 2011 12:49
Það hljóta allir góðir menn og konur að fagna því að sjá að Hardcore H. Hardcoreson er farinn að spreyja aftur á isalp.is, þá fyrst verður gaman.

Annars skil ég ekki að Kalli hafi ekki verið fyrstur til að gera þetta: www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=9&t=4069
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.36 sek