Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: GPS hugbúnaður

GPS hugbúnaður 03 mar 2011 14:30 #11517

Skrifað 03 mar 2011 14:30
Sæl öll.

Ég á Garmin Oregon 200 GPS tæki sem ég er hæst ánægður með í alla staði og tek með mér við öll tækifæri. Hinsvegar hef ég reynt að notast við MapSource hugbúnaðinn til að sjá og fær á milli slóða og upplýsingar. Mér hefur ekku fundist það nægilega gott forrit og notendavænt og erfitt að fá þær upplýsingar sem ég vill á sem skilmerkilegastan hátt.

Mér þætti vænt um að fá að vita hvaða hugbúnaði þið hafið verið að nota til að vinna með GPS gögn?

Andri

Re: GPS hugbúnaður 03 mar 2011 20:04 #11520

Skrifað 03 mar 2011 20:04
Þar sem að ég er linux notandi er ég að vinna með kortagögn og ferla í forriti sem heitir QLandkarte GT en þegar ég var með windows notaði ég OziExplorer. Nb ég rasta öll mín kort sjálfur.

Re: GPS hugbúnaður 03 mar 2011 20:06 #11521

Skrifað 03 mar 2011 20:06
Ég hef eingöngu notað MapSource. Fannst það óþolandi þegar ég var að byrja en það hefur vanist, hægt að gera mest allt í því sem maður þarf.

Er eitthvað eitt ákveðið að fara í taugarnar á þér ?

Viktor

Re: GPS hugbúnaður 04 mar 2011 08:45 #11525

Skrifað 04 mar 2011 08:45
Takk fyrir þetta strákar.

En það er aðallega það að sjá upplýsingar um ferðir og tölfræði að loknu ferðalagi ásamt hæðarlínuritum. Get ekki alveg séð hvort að MapSource ráði við það.
Einnig að eiga við mismunandi kort getur verið tricki sérstaklega ef maður fór ekki beint útí búð til að kaupa kortin :P

Andri

Re: GPS hugbúnaður 04 mar 2011 10:57 #11526

Skrifað 04 mar 2011 10:57
Garmin Basecamp er forrit sem er vert að kíkja á einfaldara en Mapsource sem þýðir að þú ert fljótari að læra á það en það ræður ekki yfir eins mörgum fídusum.

Svo er síðan connect.garmin.com/ nokkuð góð ef þú ert bara að skoða afrek ferðarinnar... vegalengd, hæðarmetra, tíma og fleira í þeim dúr.

Re: GPS hugbúnaður 04 mar 2011 11:52 #11528

Skrifað 04 mar 2011 11:52
Fyrst að menn eru farnir að nefna vefsíður í þessu samhengi má ekki gleyma þessari:
www.wikiloc.com

Re: GPS hugbúnaður 04 mar 2011 13:01 #11529

Skrifað 04 mar 2011 13:01
Ég hef notað Mapsource með ágætum árangri, amk gengur nokkuð vel að ná út tölfræði, vista og plana leiðir. Það er eitt sem truflar mig mikið, ég hef ekki fundið aðferð við að setja hnit inn á kortin þannig að hægt sé að prenta þau út og nota með áttavita með góðu móti ef GPSinn klikkar. Ef einhver kann ráð til að bjarga því við þá væri það vel þegið.

mbk, Atli

Re: GPS hugbúnaður 04 mar 2011 13:57 #11531

Skrifað 04 mar 2011 13:57
Veit ekki hvort ég skildi þig rétt Atli en ef þú setur inn waypoint og velur svo að punkturinn birtist sem symbol og comment þá getur þú copy-erað hnitinn og paste-að inn í comment og þá birtist hnitið á kortinu.
En væntanlega áttu við að fá hnitastrikað kort veit ekki um aðferð við að gera það.

Re: GPS hugbúnaður 07 mar 2011 08:53 #11535

Skrifað 07 mar 2011 08:53
Hnitastrikað kort var einmitt málið, takk fyrir að reyna.

mbk, Atli

Re: GPS hugbúnaður 07 mar 2011 11:30 #11538

Skrifað 07 mar 2011 11:30
Takk kærlega fyrir gagnlegar ábendingar og þetta hefur vonandi gagnast fleirum en bara mér.

Andri
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.36 sek