Á landinu eru þessa dagana staddir tveir klifrarar frá Alaska, þau Carrie Wang og Wayne Todd. Ég sá hjá þeim nokkrar myndir, leist vel á og bað þau um að halda sýningu fyrir okkur Ísalpara. Þau eru mjög almennileg og tóku vel í hugmyndina.
Það er ekki mikill tími til stefnu, þetta verður á föstudaginn næsta (18/02), kl. 20:00. En ég vona að sem flestir sjái sér fært að mæta. Er nokkuð viss að þau hafi frá mörgu að segja, virðast vera mjög aktíf. Þau eru í fjallabjörgunarsveit Alaska og auðvitað alpaklúbbi Alaska (Wayne er nú í stjórn og var formaður).
Klifrarar, fjallaskíðafólk og annað fjallaáhugafólk ætti ekki að missa af þessu. Veit svo fyrir víst að nýkjörin stjórn hyggst bjóða upp á hressingu :) Um að gera að byrja gott föstudagskvöld á flottum myndum og umfjöllun um Alaska og þá möguleika sem þar eru í boði í sambandi vði fjallamennsku.
Hvað segiði, er ekki stemmari fyrir svona löguðu??