Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Saumhögg

Saumhögg 29 jan 2011 11:12 #11299

Skrifað 29 jan 2011 11:12
Dömur mínar og herrar!
Hvaða sögur fara af klifri á Saumhögg í Breiðmerkurjöklli. Hef verið til sjós útaf Breiðamerkurjökli og Öræfajökli undanfarið og þá fær maður mjög skemmtilegt sjónarhorn á jökulinn og rekur augun í ýmislegt sem ekki sést frá landi. Allavega skagar Saumhögg uppúr Breiðmerkurjökli austan Heljargnípu. Kemur eins og axarblað uppúr jöklinum, mjög klifurlegt á að líta. Hefði tekið mynd en ég átti engan kubb og allt það, reyni kannski í næsta túr að munda vélina. Allavega væri fróðlegt að vita meira um mannaferðir á Saumhöggina.

Re: Saumhögg 29 jan 2011 20:59 #11301

Skrifað 29 jan 2011 20:59
Einhverjir hafa vafalaust átt leið þarna um. Hér er mynd tekin af Þuríðartindi af þessu svæði.

Hæsti snætindurinn er Káratindur, klettarnir eru Heljareggin og rétt fyrir neðan það ætti Saumhöggið að koma.

www.flickr.com/photos/steinarsig/5279654911/in/set-72157625519360963/
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.26 sek