Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hvaða tímarit?

Hvaða tímarit? 11 jan 2011 13:57 #11157

Skrifað 11 jan 2011 13:57
Ég er alltaf að huga að því að fara í áskrift að einhverju klifurblaðinu en kem því aldrei í verk.Hluti af ástæðunni er að ég get ekki ákveðið mig hvaða blað er áhugaverðast og sveiflast helst á milli Rock&Ice og Alpinist.

Eru einhverjir leyndir gimmsteinar í þessari tímaritaflóru og með hvaða blöðum mælið þið?

(Ég hef áhuga á allflestu innan fjallamennskunnar, þ.e. klifur, ísklifur, fjallaskíðun, alpinisma etc. og langar helst í blað sem lumar á þessu öllu saman.)

Re: Hvaða tímarit? 11 jan 2011 14:22 #11159

Skrifað 11 jan 2011 14:22
Fyrir minn part þá er Alpinist málið. Vandað blað, góðar greinar, flottar myndir o.s.frv. Gott fjallaklifurklám sem gaman er að eiga. Kannski svoldið dýrt.
Kv.Öddi

Re: Hvaða tímarit? 11 jan 2011 17:29 #11162

Skrifað 11 jan 2011 17:29
Alveg klárt mál að það á að vera Alpinist, rosalega flott tímarit en kemur þó sjaldnar út en þetta fer náttúrulega svolítið eftir áhugasviði. Mér hefur Rock and Ice vera aðeins of mikið um klettaklifur og minna um ís en það er bara ég, Rock n ice er samt fínt rit. Annars hef ég verið með áskrift að Alpinist og mæli alveg með því.

Kv.
Arnar

Re: Hvaða tímarit? 11 jan 2011 21:00 #11171

Skrifað 11 jan 2011 21:00
Ágúst Kristján Steinarrsson wrote:


Eru einhverjir leyndir gimmsteinar í þessari tímaritaflóru og með hvaða blöðum mælið þið?



Ársrit Ísalp! Fokk já!

Hvenær kemur það eiginlega út?


Skabbi
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.25 sek