Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Til hvers isalp.is?

Til hvers isalp.is? 27 des 2010 13:17 #10995

Skrifað 27 des 2010 13:17
Það er að verða algengara að fólk sniðgangi algerlega ísalpvefinn þegar það fjallar um t.d. ísklifurferðir eða spjallar um klifurtengd málefni sem venjulega hafa verið rædd á Ísalpspjallinu. Skil alveg að menn pósti myndum á fésinu rétt eins og í annars konar gallerýum sem lengi hefur verið gert. En hingað til hafa menn þó sett linka inn á Ísalpvefinn. Þegar menn eru hættir því þá er bara alveg gengið framhjá spjallinu á Ísalpvefnum.

Ég sá að heilmikil umræða hefur verið í gangi um hjálma á fésinu, eitthvað sem ég sá t.d. ekki fyrr en löngu eftir að hún hófst því ég nota fésið mjög lítið. Það er auðvitað val hvers og eins hvort og hvernig þeir nota Ísalpvefinn. En ef menn velja að sniðganga hann í auknum mæli þá fer maður að spyrja sjálfan sig hvort það sé þess virði að halda þessum klúbbvef uppi og leggja heilmikla vinnu í það.

Það getur vel verið að fólki finnist skemmtilegra og þægilegra að hafa þetta allt innan minni og lokaðri hópa á fésinu í stað þess að hafa þetta opið og aðgengilegt fyrir alla. Ég er ekki sammála því og er hálfsvekktur yfir þessari þróun þar sem mér þykir mjög vænt um klúbbvefinn og þann vetvang sem hann hefur verið. Fyrir mér er isalp.is bakbeinið í klúbbnum og ef hann missir gildi sitt þá er ekki mikið eftir af Ísalp.

Það væri áhugavert að heyra hvað þið hafið um þetta að segja.

Kv. Björgvin

Re: Til hvers isalp.is? 27 des 2010 13:56 #10998

Skrifað 27 des 2010 13:56
Ég tek undir þessar vangaveltur hjá Bjögga... Finnst alltaf jafn leiðinlegt hvað umræða er alla jafna lítil á síðunni og þegar eitthvað er sagt þá er það gjarnan fámennur hópur sem er eitthvað að tjá sig.

Þessi fámenni hópur lætur þetta stundum líta út eins og isalp.is sé í raun enn ein fámenna klíkan og hef ég reyndar heyrt aðra fjallamenn benda á þessa "staðreynd" til að útskýra takmarkaða aðkomu að síðunni og klúbbnum.

Nú veit ég ekki hversu margir eru að fara inn á síðuna en ef það er ágætis fjöldi þá er heimasíðan eflaust að standa undir sínu. Hitt er hve óduglegir menn/konur eru að segja frá sínum ævintýrum og jafnvel enn verra er hve fólk er óduglegt að kommenta á hvað aðrir eru að gera - sem dregur líklegast úr líkum á því að sagt verði frá næsta ævintýri.

Ég er kannski kominn í of djúpar pælingar um orsök og afleiðingu en er kannski að gefa í skyn að hugsanlega hefur einhver bolti farið af stað og það hefur hlaðist á hann jafnt og þétt og engn ein orsök fyrir þessu. Afraksturinn er aftur á móti sá að á ca. 5 árum hefur Ísalp breyst úr því að vera hjartað í fjallamennsku íslands (kannski full jákvæð lýsing) yfir í það að vera einn af mörgum valkostum sem upprennandi fjallakall/kella getur sótt í og tengt sig við. Léleg þáttaka á isalp.is er síðan bara ein birtingarmyndin á þessu vandamáli...

Annars fer ég örugglega 5 sinnum á dag á síðuna og fylgist gaumgæfilega með flestu sem gerist þar... Ómeðvitað er ég, held ég, að stilla mínum kommmentum í hóf einfaldlega af því að þá væri ég eflaust "þessi sem er alltaf að skrifa á síðuna" - af því að skrifin eru það lítil... Yrðu samskiptin virkari myndi ég eflaust láta heyra meira í mér.

Re: Til hvers isalp.is? 27 des 2010 14:00 #10999

Skrifað 27 des 2010 14:00
Það var lagst í mikla könnun hér f. all nokkrum árum um gildi vefsins og hlutverk hans. Það skapaði einhverja umræðu á þeim tíma og kannski vert að taka aftur upp þráðinn.

Ísalp skipar veigamikinn sess í fjallaumræðunni hjá mjög svo þröngum hópi, sennilega þeim sem klifra meira en hinn almenni björgunarmaður. Einhvern tímann var komist að orði að kalla þá sem stunda Ísalp meira harðkjarna en hina, og var það frekar umdeilt orðaval (en það tengdist því hvort við ættum að tengjast Ferðafélagi Íslands ofl). Ég held að björgunarfólk sem klifrar af og til haldi sig annarsstaðar en hér. Ég held að þeir sem teljist til sportklifrara séu ekki mikið að hanga á Ísalp? Er þetta bara mín tilfinning og er ég alveg á villigötum þegar ég segi það.

Nú veit ég ekki hvaða umræðu um hjálma þú ert að tala og ég held að mér gæti ekki verið meira sama hvort að menn vilja nota þennan eða hinn hjálminn, hvað hann er gamall osfrv. Hvort þessi umræða á heima hér á vefnum en ekki öðrum samskiptaforritum er vandsvarað. En eitt er víst að á næstu árum á það eftir að breytast mjög hvernig við höfum samskipti.

Það sem er hættulegast með svona vefi er að viss húmor, úttúðun og fleira getur fælt fólk frá vefnum. Þannig að við sem sækjum hann verðum að passa okkur á því hvað fer hér inn. Ég veit ekki til þess ða hér hafi veri stunduð ritskoðun. Ég held að allir geti sannmælst um það að umræða um nýjar leiðir, ferðir framundan, aðstæður og annað sé af hinu góða.

Ég held að ég sé ekki langt frá því þegar ég segi að þeir sem skoði vefinn reglulega séu ekki mikið fleiri en 200 ef þeir ná þeirri tölu. Efast um að við fáum mikið fleiri en 400 einstaklinga sem skoða vefinn á ári. Það er ansi þröngur markhópur. En ég hef svo sem ekkert til að styðjast við þessar tölur.

Persónulega finnst mér alltaf gaman þegar settar eru inn fréttir af umræðunni sem er á öðrum síðum, erlendis. Ég hef ekki tíma til að skoða klifur.is, klifurhusid.is, klifur.com og aðrar síður sem eru að reyna að henda inn efni um það sem er að gerast hér. Ég treysti því bara að það helsta skili sér á Ísalp og það nægir mér. En varðandi topo mál að þá held ég að það sé í lagi að vera með það á öðrum síðum, klifur.is osfrv en bara ef við erum með skilmerkilega linka á það hér á isalp.is

kv.Himmi sem er með skoðun á vel flestu

Re: Til hvers isalp.is? 27 des 2010 15:37 #11000

Skrifað 27 des 2010 15:37
Halló

Ég verð víst að játa að hafa hent fram spurningu um hjálma á facebúkk síðuna mína. Svörin sem ég fékk voru nokkuð góð en eftir á að hyggja hefðu fleiri haft gagn og gaman af þeirri umræðu.

Virknin hér á vefnum hefur verið nokkuð góð að mínu mati. Það sem mér finnst hins vegar miður er að í haust þá voru menn frekar latir við að deila upplýsingum um aðstæður hér á spjallið. Það er mál sem er allir ættu að vera sammála um. Upplýsingar um aðstæður á hinum ýmsu svæðum rötuðu ekki á vefinn og of oft var maður að lesa um aðstæður inni á facebook.

Lifi isalp.is

Ági

Re: Til hvers isalp.is? 27 des 2010 16:32 #11001

Skrifað 27 des 2010 16:32


Góð og þörf umræða. Ég hef, eins og þið hinir, tekið eftir því að umræður sem áður hefðu skýlaust ratað á síður ísalp fara í æ ríkari mæli fram á Facebook. Eins og Ági bendir á hefur maður séð umræðum um hinar og þessar græjur, myndir úr ýmsum ferðum og upp á síðkastið lýsingar á aðstæðum hér og þar.

Auðvitað finnst mér leiðinlegt að ísalp, og þá sérstaklega ísalp vefurinn, njóti ekki lengur trausts sem vettvangur fyrir svona skoðana- og upplýsingaskipti. Hitt er svo annað mál að ég gæti líklega passað mig að fylgjast (enn) meira með fésinu og reynt að fá þær upplýsingar sem ég áður fékk á isalp.is þaðan. Kannski getur okkar heimatilbúni vefur einfaldlega ekki lengur keppt við facebook, þar sem allir virðast eyða fleiri tímum á dag.

Auðvitað langar mig mest til að breyta hugsunarhætti íslenskra klifrara og fjallamanna á þann hátt að þeir leiti fyrst og fremst á Ísalp vefinn þegar kemur að svona löguðu en það er kannski til of mikils ætlast. Væri klúbburinn ef til vill betur kominn ef hann legði þennan vef einfaldlega niður og færði sig alfarið yfir á facebook? Tæknilega hugsa ég að það sé alls ekki óhugsandi, þó að vissulega fái ég óbragð í munninn við tilhugsunina. En á mót spyr maður; hvað þarf að gerast með þennan vef til þess að fólk komi hingað, deili myndum og upplýsingum um aðstæður?

Ég er svosem ekki með svör á reiðum höndum og þetta leiðir hugann að annari mikilvægri spurningu, til hvers er Íslenski Alpaklúbburinn?

Allez!

Skabbi

Re: Til hvers isalp.is? 27 des 2010 17:30 #11002

Skrifað 27 des 2010 17:30
Sæl veriði!

Óskar heiti ég og er búsettur á Höfn. Ég fór að hafa áhuga á klifri og fjallamennsku fyrir rúmum 3 árum. Þar sem að ég er langt frá höfðuborginni,þar sem sennilega flestir ísalparar búa og kjarni starfseminnar fer fram,hefur maður fylgst með því sem verið er að gera og hvernig menn gera hlutina í gegnum þessa síðu. Ísalpsíðan spilaði alveg risa hlutverk í því að ég fékk bakteríuna. Ég hef verið alltof latur við að setja inn myndir og annað af því sem ég hefur verið að gera, inná síðuna en það gæti breyst. Ég nota síðuna mikið og mér finndist mikill missir af því að missa þennan vettfang í eitthverja facebúkksósu, droppa hérna inna daglega. Kannski eru fleiri draugar eins og ég sem gætu glætt síðuna meira lífi......spurning!!

Re: Til hvers isalp.is? 27 des 2010 18:44 #11003

Skrifað 27 des 2010 18:44
Sæl öll
Þar sem að ég er nú búsettur í Bergen þá get ég sagt að vefurinn er frábær, ég fer inn á hann allavega einu sinni á dag bara til að fylgjast með því sem er að gerast. Ég er til dæmis að reyna að finna fjallaklifursamfélagið hér og þá hefði verið frábært að hafa aðgang að síðu eins og þessari. Vefurinn á örugglega sinn þátt í að útbreiða boðskapinn sem að myndi kanski ekki gerast í eins ríku mæli á fésinu. En um það hverijir skrifa inná vefinn..... það hljóta að vera þeir sem að finnst að þeir hafi frá einhverju að segja og vilja deila því með öðrum við erum jú mjög misjöfn. En ég bið ykkur sem að eruð svo viljug að skrifa að halda því áfram því að það er fullt af fólki sem að les það og hefur gaman af. Verum dugleg að setja myndir inná með greinunum, ég þurfti til dæmis að gefa eftir og skrá mig á fésið til að geta fylgst með myndum af klifri það var svartur dagur ;)(ákv formaður vildi ekki leyfa mér að skoða myndirnar nema að ég kæmi yfir til þess illa)

Re: Til hvers isalp.is? 27 des 2010 18:48 #11004

Skrifað 27 des 2010 18:48
Það versta við Facebook er að þar týnast umræðurnar/statusarnir. Ég hef mjög oft notað leitina hérna því maður man eftir umræðum um t.d. búnað, ákveðna leið, bætur á fatnað o.s.frv.

þannig að þessar umræður hérna eru oft á tíðum mikilvæg heimild þegar kemur að aðstæðum, leiðum, hvert maður getur leitað upplýsinga og þess háttar. Þetta glatast á Facebook.

Mér finnst ágætt ef Ísalparar hafi þetta í huga þegar þeir pósta upplýsingum um fjallamennsku á Facebook sem nýtast öðrum. (fyrir utan að maður er ekki vinur allra sem stunda fjallamensku á fésinu)

En kannski mætti bæta þessum FB-fídusum á þessa síðu eins og er á svo mörgum síðum þar sem hægt er að deila, líka og hvað það er allt þetta FB-dót.

Re: Til hvers isalp.is? 27 des 2010 20:08 #11005

Skrifað 27 des 2010 20:08
Ég er sammála þessu með að missa Isalp.is ekki inn í Facebook! Ég kíki daglega hérna inn og finnst eins og Hauki nauðsynlegt að geta fylgjst með stöðunni á Íslandi eftir að ég flutti út. Ef að hún færist inn á Facebook þá mun hún týnast í öllum hinum 'like-unum'.

Ég er einnig búin að vera að skoða mikið af síðum hérna í Norge sem tengjast ferðalögum og klifri og ég er sammála Hauki með að það er engin sem kemur nálægt Isalp.is (kannski bara að því að það vantar fólkið ;))

En það mætti endilega skoða myndamálin betur. Man þegar ég skráði mig fyrst inn á isalp.is þá var nokkuð skemmtilegur mynda'fídus' hérna þar sem hver og einn meðlimur gat sett myndir inn á sitt svæði. Alltaf gaman að skoða myndir af afrekum annara ;)

En lengi lifi Ísalp!

Re: Til hvers isalp.is? 28 des 2010 03:46 #11007

Skrifað 28 des 2010 03:46
Björk Hauksdóttir wrote:
En kannski mætti bæta þessum FB-fídusum á þessa síðu eins og er á svo mörgum síðum þar sem hægt er að deila, líka og hvað það er allt þetta FB-dót.


Like!! :) ;) :( :P !!!!!!1111111111

Allez!

Slabbi

Re: Til hvers isalp.is? 28 des 2010 12:42 #11010

Skrifað 28 des 2010 12:42
Svona lít ég á þetta.

Vandamál A)
Í gegn um tíðina hef ég oft heyrt sögur af fólki að gera skemmtilega hluti annarstaðar en hér á þessarri heimasíðu. Þegar ég hef spurst fyrir um hvers vegna þetta hafi ekki ratað inn á isalp hefur fólki oftar en ekki sagt að þetta væri líklega of lítilsvert til að segja frá því hinum mikla frægðarvef.

Í kjölfarið hef ég að sjálfsögðu hvatt alla virka fjallamenn til að láta vita af ferðum sínum á vefnum.

Vandamál B)
Upp á síðkastið hefur umræða og myndefni sem tengst klifri og fjallamennsku færst að einhverju leyti af heimasíðu ísalp yfir á feisbúkk.

Lausn á vandamáli A)
Breyta hugsunarhætti fjallamanna á þann veg að þeir hræðist ekki að segja frá og sýna myndir af því sem þeir eru að bralla eða hugsa.

Lausn á vandamáli B)
Beina umferð upplýsinga inn á ísalpheimasíðuna.
Hvort sem myndir eða upplýsingar séu geymdar á öðrum stöðum þarf að passa upp á það að þær nái inn á isalp.is.

Þannig sköpum við skemmtilegt samfélag.
Staðreyndin er sú að það eru ótrúlega margir draugar að lesa síðuna og þegar síðan er virk lifnar samfélagið við. Það er í beinu framhaldi af mikilli virkni isalp.is sem maður fer að rekast á annað gore-tex fólk á bensínstöðvum fyrir birtingu um helgar.

Segjum frá og sýnum myndir.

F.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Til hvers isalp.is? 28 des 2010 12:45 #11011

Skrifað 28 des 2010 12:45


Óskar, alltaf gaman að sjá ný nöfn hérna inni. Það væri snilld að heyra oftar í klifrurum utan höfuðborgarsvæðisins.

Mér finnst eins og ég sé oft að tala við sjálfan mig á þessum spjallþráðum en það er kannski her manns sem slafrar í sig hvern vísdómsmola sem af vörum mínum hnýtur.

eða ekki...

Skabbi

Re: Til hvers isalp.is? 28 des 2010 13:50 #11012

Skrifað 28 des 2010 13:50
Já gaman að fá svona umræðu og sérstaklega að fá inn ný "andlit". Maður hefur allaf haft það á tilfinningunni að þetta væri alltaf frekar þröngur hópur af sérfræðingum að sunnan að viðbættum nokkrum snillingum frá Ísafirði og Akureyri.

Ég fór að klifra helgina 1-3 maí síðastliðinn ef ég gleymdi að nefna það, picasaweb.google.com/himmi78/RoadTripMtArapiles# , en þetta snýst ekki endilega um að vera lítilfjörlegt heldur kannski að maður sér ekki ástæðu til að vera að koma öllu hér á framfæri? Ég er að vonast til að ég geti gefið mér tíma til að skrifa um þessa ferð ásamt fjölmörgum öðrum sem ég fór í andfætlingalandi fyrir næsta ársrit.

Annars rakst ég á þetta og fannst það frekar skemmtilegt, solo klifur www.dailymail.co.uk/news/article-1320728/Herd-mountain-goats-climb-160ft-near-vertical-Cingino-dam-Italian-Alps.html

kv.Himmi

Re: Til hvers isalp.is? 28 des 2010 13:58 #11013

Skrifað 28 des 2010 13:58
Að halda ÍSALP vefnum lifandi er ekki mjög fljókið.

Ég tók nú formaninn undir armin á síðustu jólaglögg og sagði honum lífsreglurnar.

Þeir sem þora og nenna þeir skrifa á vefin. Ekki endilega frá sýnum afrekum heldur allt sem þeir heira og sjá. Þeir skrifa það strax (Það á ekki að eiða vikum í að snurfusa texta og myndir).

Ef ekkert er nógu merkilegt til að rata á vefin þarf að fá leigupenna til að sjá til þess að það sé gert.

kv
palli

Re: Til hvers isalp.is? 28 des 2010 14:59 #11014

Skrifað 28 des 2010 14:59
Svo mætti líka leyfa fólki að auglýsa hlutina hér í friði án þess að hinir og þessir séu að fara inn í söluþræðina þeirra og reyna að skemma fyrir. Þetta hefur gerst oftar en einu sinni hér og er óskaplega hvimleitt. Mín skoðun er reyndar sú að það eigi ekki að vera hægt að svara söluþræði, menn eiga bara að hringja eða senda imeil í viðkomandi ef áhugi er fyrir vörunni. Ef einhverjum finnst eitthvað of dýrt á sá hinn sami ekki að kaupa hlutinn!

Re: Til hvers isalp.is? 28 des 2010 15:32 #11015

Skrifað 28 des 2010 15:32
Guðmundur Sveinbjörn Ingimarsson wrote:
Svo mætti líka leyfa fólki að auglýsa hlutina hér í friði án þess að hinir og þessir séu að fara inn í söluþræðina þeirra og reyna að skemma fyrir. Þetta hefur gerst oftar en einu sinni hér og er óskaplega hvimleitt. Mín skoðun er reyndar sú að það eigi ekki að vera hægt að svara söluþræði, menn eiga bara að hringja eða senda imeil í viðkomandi ef áhugi er fyrir vörunni. Ef einhverjum finnst eitthvað of dýrt á sá hinn sami ekki að kaupa hlutinn!


Get ekki tekið undir þetta. Ég held að það sé á ábyrgð okkar sem teljum okkur hafa vit á hlutunum að kom í veg fyrir að nýliðar í sportinu kaupi hluti sem eru beinlínis hættulegir.

Það er orðið algengt að menn grafi upp gamalt drasl í geymslunni og reyni að koma í verð. Ekkert að því, nema þegar menn reyna að selja hluti sem eru löngu úr sér gengnir og eiga ekkert erindi upp á fjöll aftur. Og hananú!

Skabbi

Re: Til hvers isalp.is? 28 des 2010 15:41 #11016

Skrifað 28 des 2010 15:41
Ég er ekki að tala um nylon hluti, ég er að tala um harðvörur eins og þær sem voru seldar hér í síðustu viku. Manninum er klárlega í sjálfsvald sett að setja 20 þúsund krónur á ísaxapar og öðrum er algerlega í sjálfsvald sett að kaupa það.
Og hana hana nú

Re: Til hvers isalp.is? 28 des 2010 16:00 #11017

Skrifað 28 des 2010 16:00
Formaðurinn veit upp á sig sökina og hefur ekki alltaf hamrað lyklaborðið með óþiðnum fingrum (strax eftir klifur). Hann lofar þó bót og betrun og gæti jafnvel strengt áramótaheit þetta árið og verið aktívari við skrif og myndainnsetningar á því næsta.

Og strákar, er ekki alveg fullkomlega eðlilegt að á umræðuvef skiptist menn á skoðunum?
Hvort sem um er að ræða verðlagningu eða ágæti hluta sem verið er að reyna selja.

Legg til að við öll setjum meira af efni hingað inn.

!!EF ÞAÐ Á HEIMA FB, Á ÞAÐ HEIMA Á ÍSALP!!

(svo lengi sem það viðkemur fjallamennsku að sjálfsögðu, hef ekki áhuga á því hvað þú fékkst í jólamatinn).

F.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Til hvers isalp.is? 28 des 2010 16:44 #11019

Skrifað 28 des 2010 16:44
Kannski ágætt að hafa það í huga að allir sem eru búnir að kommenta á þennan þráð tilheyra 80% þeirra sem eru að tjá sig á reglulegum basis á síðunni. Þó að þessi litli hópur lofi tíðari skrifum held ég að lausnin á þessu vandamáli sé ekki beinlínis í sjónmál... Markmiðið er, held ég, að gera fleiri aktífa í þessum skrifum og að þátttakendum í störfum félagsins.

Ísalp er fyrir fjallamenn og konur sem heillast af fjallamennsku á jaðrinum. Sem stendur eru ófári sem falla undir þessa skilgreiningu ekki virkir meðlimir í Ísalp. Þá grunar mig jafnvel að rjóminn af nýgræðingum eru að vaxa upp í hjálparsveit eða hjá klifurhúsinu og að líkurnar á því að þeir endi í Ísalp fari dvínandi með hverju árinu - og að jafnvel fari fólki í "mountaineering" fækkandi með árunum... en það er kannski bara eitthvað svartsýnistal í mér.

Þá finnst mér alvegt vert að hafa það í huga að harkaleg skoðanaskipti á síðunni geta alveg hrætt í burtu nýgræðingana og hefur eflaust gerst oftar en einu sinni. Skoðanaskipti eru góð en á sama tíma ágætt að hafa vanda orðavalið ef hægt er.

P.S. Himmi - ég væri meira en til í að heyra meira af klifri þínu í Ástralíu og hvet stjórn til þess að sjanghæja þig í að halda myndasýningu um ferðina. Svo væru greinaskrif í næsta ársrit vel þegin.

Re: Til hvers isalp.is? 28 des 2010 17:06 #11020

Skrifað 28 des 2010 17:06
Hér tjáir fólk sig undir nafni óritskoðað, nema ef vera skildi Harcore H. Hardcoresson en hann og hans skrif eru undanskilin. Það er gott og blessað og heldur vonandi þannig áfram.

Harkaleg skoðanaskipti fæla ekki nýgræðinga frá, ef eitthvað er þá draga þau fleira fólk að sér sem vill sjá eitthvað subbulegt...

Nei, en grínlaust þá get ég ekki kvittað undir það að harkaleg skoðanakipti á umræðuvef hindri áhugasamt fólk í því að kíkja á myndasýningar og/eða taka þátt í starfi klúbbsins.

Annars væri afar fróðlegt að sjá fleiri "drauga" skjóta upp kollinum og tjá sig um þeirra sýn á þetta alltsaman.

kv,

Freysi friðsamlegi
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Til hvers isalp.is? 28 des 2010 19:35 #11022

Skrifað 28 des 2010 19:35
Ég er einn af draugunum sem fylgist reglulega með hérna enda fátt skemmtilegra en að heyra hvað fólk er að bralla.

Vefinn notar maður t.d. líka til upplýsingaöflunar um svæði og fyrri ferðir manna á staði sem maður hyggst heimsækja.

Þetta er góð áminning um að halda vefnum lifandi okkur til skemmtunar og fróðleiks

Kv,
Óðinn

Re: Til hvers isalp.is? 28 des 2010 23:38 #11026

Skrifað 28 des 2010 23:38
Vandamálið með vefinn núna (eins góður og hann nú er) er að:

Það er erfitt að setja inn myndir og video. Engar leiðbeiningar er að finna á vefnum hvernig á að gera það. Það virkar bara stundum og stundum ekki. Reyndar er Skabbi búinn að segja mér hvernig á að setja inn video. Mér gengur alltaf illa að setja inn myndir.

Mínar síður eru ekki virkar lengur. Þar gat maður sett inn myndir (reyndar með smá html kóðun) og samið skemmtilegar ferðasögur sem söfnuðust upp með tímanum. Núna týnist þetta bara í mis löngum umræðuþráðum.

Það er kekert svæði með t.d. "best of" myndir ársins eða mánaðarins. Eða bara skemmtilegt myndasafn skipt upp eftir landshlutum sísonum osfrv.

Hvergi er haldið utan um video sem klúbbmeðlimir senda inn.

Þetta er megin ástæðan að mínu mati fyrir því að félagar eru að nota picasa, facebook og annað dót sem gerir þetta auðveldara.

Við skulum ekki blóta fésinu. Málið er bara að kippa þessu í liðinn ef áhugi er fyrir því. Ég myndi glaður bjóða mig fram ef ég kynni eitthvað í forritun...
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Re: Til hvers isalp.is? 29 des 2010 00:08 #11027

Skrifað 29 des 2010 00:08
Fínasta og hin þarfasta umræða sem hér er komin upp.

Til hvers erum við að halda úti isalp.is? Þetta er spurning sem okkur er hollt að velta aðeins upp.
Ég kíki á isalp.is næstum daglega þegar ég er við tölvu og það sem ég býst við og finnst skemmtilegast að sjá eru fréttir af ferðum og aðstæðum. Myndir sem fólk hefur verið að taka og jafnvel video. Fyrir utan svo auðvitað dagskrána og fréttirnar.

Hér Rúnar strax komnar hugmyndir um úrbætur. Eru einhverjir með fleiri hugmyndir sem gætu nýst við þetta? Það var minnst á facebook tengingu, ég væri jafnvel til í að sjá eitthvað vægt eins og "læk" takka eða svo fyrir þá sem eru að fésast hvað mest.


Í langan tíma höfum við á climbing.is verið að þróa ísklifur-leiðarkerfi sem fer nú brátt að vera notkunarhæft þegar ég er búinn að forrita innskráningarformið sæmilega. Á þessu byrjuðum við fyrir einu og hálfu ári en kannski ekki sett nógu mikin þunga á þróunina til að klára hana. Þetta er auðvitað eitthvað sem við viljum að nýtist ísalpfélögum og væri bara sjalfsagt að tengja þetta hérna inná vefinn þegar það er klárt. Fyrir þá sem ekki hafa séð þetta þá geta þeir kíkt á:
www.climbing.is/gspot2.php?page=climb&svaedi=SV&spot=Buahamrar
Þetta er Búahamrasvæðið, setti nokkrar leiðir þar inn til prufu, einnig er hægt að skoða Kjós, Bíldudal og Köldukinn.. þar er eitthvað efni komið inn.


Lengi lifi isalp.is!
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Til hvers isalp.is? 29 des 2010 00:47 #11028

Skrifað 29 des 2010 00:47
Hugmynd að úrbótum
Færa keypt&selt út af spjallinu og koma því undir sér haus í Aðalvalinu.

Frekar pirrandi þegar dritast inn haugur af sölutilkynningum sem drekkja gáfulegu þráðunum hérna inni.
Akkúrat núna eru t.d. fjórir af tíu forsíðuþráðunum Keypt/selt...

Myndadæmið hérna er fínt til að henda inn einni og einni mynd með spjalli en ég nota sjálfur Picasa og linka á það héðan. Finnst ekkert að því formati enda erfitt að þróa isalp.is að það geti keppt við slíka vefi í fúnskjón. Þurfum þá ekki heldur að geyma einhver ósköp af gögnum undir gallerí félagsmanna með tilheyrandi kostnaði.

Annars er hérna áhugaverð grein um búnað í ísklifri.
www.aai.cc/pdf_download/Equipment_Ice_Mixed_Climbing.pdf

Var að lesa bókina hans Steve House um jólin. Beyond the Mountain heitir hún og er gríðarleg snilld (alla vega helmingurinn sem ég er búinn með).
Veit ekki hvort hún er til í hérlendum bókabúðum reyndar...

Re: Til hvers isalp.is? 29 des 2010 22:38 #11045

Skrifað 29 des 2010 22:38
Sæl öllsömun

Einn af draugunum sem nota þennan vef nánast daglega og þeir eru margir sem ég þekki sem eru frekar virkir inn á þessari síðu. En það er svo eiginlega undir okkur komið sem erum út á landsbyggðinni að vera svolítið virkari að senda fréttir og jafnvel myndir líka, svo þetta sé ekki bara bundið við sv-hornið. Annars þætti mér miður ef þessi vefur yrði af engu vegna tilkomu fesins.

Kv. að norðan

Re: Til hvers isalp.is? 30 des 2010 00:16 #11046

Skrifað 30 des 2010 00:16
Ég er líka ein af draugunum sem fer daglega inn á þessa síðu og ég veit um fleiri drauga sem fara líka daglega inn =) Þetta er frábær síða og má svo sannaralega ekki detta inn í neitt facebook rugl. Facebook getur alltaf dáið út eins og myspace =P

Það er mjög skemmtilegast að lesa um klifurferðir fólks hérna og þið megið endilega halda þessu áfram. Mínar ferðir hafa sjaldan náð að verðea svo merkilegar að þær hafi átt erindi hingað inn en maður tekir sig kannski á næsta sumar og skrifar um einhverjar klifurferðir.

Kv. Vilborg

Re: Til hvers isalp.is? 30 des 2010 10:44 #11051

Skrifað 30 des 2010 10:44
Djöfull er gaman að sjá draugana dúkka hérna upp.

Nú væri ekki úr vegi fyrir ykkur, og okkur hin sem höfum verið að skirfa, að hamra lyklaborðið meðan það er heitt og losna almennilega við ritstífluna. Það þarf að ekki að vera um einhverja frumfarna, háskalega klifurleið til að eiga erindi hingað inn.

Myndir og ferðasögur eiga alltaf erindi hingað.

F
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Til hvers isalp.is? 01 jan 2011 15:31 #11066

Skrifað 01 jan 2011 15:31
Góðan dag og gleðilegt nýtt ár!

Ég er einn af þeim sem kíkja á vefinn daglega án þess þó að tjá mig nokkuð. En nú verður kannski breyting þar á.

Ég verð að segja að mér finnst umræðan góð og margar skemmtilegar hugmyndir um úrbætur komnar fram. Vona að þær verðu þó að einhverju meira en bara hugmyndum.

Varðandi Fésbókina þá held ég að við eigum ekki að hræðast hana, þó að ég vona innilega að vefurinn leggist ekki niður og færist alfarið þar inn, heldur að við nýtum þá kosti sem þessi lang stærsti vefur landsins hefur uppá að bjóða. Í því samhengi vill ég benda á að MBL sem er stærsti íslenski vefurinn sá ástæðu til að færa sig á fésbókina. Ég hef "like-að" á MBL og fæ þessvegna nýjustu fréttirnar af MBL inná news-feedið mitt á FB. Ekki slæmt það.

Þetta er bara basic marketing. Verum sjáanleg þar sem fólkið er.

Ég sæi fyrir mér því tvennt.
Að stofnuð yrði Ísalp síða á FB.
Þar mynd helstu fréttir, dagskrá og sniðugir umræðu þræðir vera póstaðir inn. Það myndi þannig minna fólk á okkur og þennan góða vef.
Þar getum við lokað alfarið fyrir allra umræður þar sem við viljum að þær fari fram á Isalp.is

Einnig að bæta við "like" á allar síður Isalp.is. Rétt eins og allir íslenskir fréttavefir hafa gert. Þannig get ég like-að á einhverja skemmtilega umræðu eða frétt og allir mínir vinir á fésbókinni sjá hana.

Þannig fáum við fleirri inná vefinn og um leið mögulega fleirri virka þáttakendur.

Einnig myndi ég vilja sjá mun örari fréttaveitu.
Ég man seinasta sumar kíkti ég fyrst nær daglega hér inn og það var ekki breyting á vefnum í nokkra mánuði. Ég held að það dragi rosalega úr aðsókn á vefsíður ef þær eru lítið uppfærðar. Ef ég fæ það á tilfinninguna að það er nóg að kíkja aðrahverja viku til að vera up to date þá geriri maður það, er það ekki?

Ég kíki reglulega á vefsíðu hjá stjörnuáhugamönnum, www.stjornuskodun.is, en þeir settu upp nýjan vef ekki alls fyrir löngu. Þar koma inn nýjar fréttir í hverri viku og oft fleirri en ein. Held að það sé eitthvð sem við getum tekið til fyrirmyndar. Að hér yrðu sett upp viðmið að koma með nýja frétt eða grein vikulega. Því fylgir vissulega mikil vinna en það væri hægt að virkja flerri og dreifa vinnunni á fleirri hausa.


Þetta eru mínir punktar á þessu nýja fallega ári ;)
Festuða á filmu!
www.spenna.is :: www.mons.is

Re: Til hvers isalp.is? 01 jan 2011 17:00 #11068

Skrifað 01 jan 2011 17:00
Ég er ánægður að sjá hvað þessi þráður hefur fengið mikla athygli og hversu margir eru að tjá sig sem ekki gera það alla jafna. Held að nú þegar hafi með þessum þræði orðið ákveðin vakning sem er strax farin að skila sér í meiri umræðu, í því að fleiri pósta myndum, uppástungur um umbætur og svo mætti lengi telja.

Margar af þessum uppástungum eru góðar og áhugaverðar. Við í stjórn munum að sjálfsögðu nýta okkur það sem hér hefur komið fram (og á eftir að koma fram) til þess að átta okkur á stöðunni og gera betrumbætur.

Andri er ekki sá eini sem talar um að við megum ekki afskrifa fésbókina heldur nýta hana, þ.e. þá kosti sem hún hefur. Þrátt fyrir að vera annálaður skeptíkus gagnvart fésbókinni þá er ég ekki það mikill þverhaus að afskrifa hana alveg án þess að skoða málið. En er ekki gott að hafa efasemdamenn nálægt til að hægja á óðagoti og flumbrugangi :) Ekki viljum breyta um kúrs og fara einhverja leið sem við sjáum svo eftir síðar.

En sem sagt, umræðan heldur vonandi áfram og það sem hér kemur fram mun klárlega nýtast. Fljótlega mun stjórn klúbbsins hittast og ég get lofað ykkur að þessi mál munu verða rædd þar.

Takk fyrir viðbrögðin.

Lifi Ísalp ;)

p.s. Vil svo benda á þetta frá Skabba. Kvetjum sem flesta til að koma sínum myndasíðum á framfæri á þann hátt sem hann bendir á í þessum þræði.

Re: Til hvers isalp.is? 03 jan 2011 09:23 #11077

Skrifað 03 jan 2011 09:23
Mér líst vel á tillögur Andra - eitthvað svo augljósar þegar hann nefnir það og munu nánast pottþétt gera isalp.is sýnilegra. (FB paranojan er óþörf þar sem þetta er eingöngu minniháttar viðbót við núverandi síðu, þetta verður aldrei staðgengill en mun líklegast draga úr aðskilnaði.)

Tek jafnframt undir ósk/tillögu um tíðari fréttir.

Re: Til hvers isalp.is? 29 jan 2011 21:38 #11302

Skrifað 29 jan 2011 21:38
Mjög góð lausn á FB væðingu Ísalp sem Andri bendir á. Mér leist illa á þegar ég sá að Ísalp setti upp FB síðu. Sá fram á að umræðan færðist þangað sem er verra held ég. En þessi lausn vekur athygli á umræðum hér án þess að stela umræðunum.
Andri Ómarsson wrote:

Ég sæi fyrir mér því tvennt.
Að stofnuð yrði Ísalp síða á FB.
Þar mynd helstu fréttir, dagskrá og sniðugir umræðu þræðir vera póstaðir inn. Það myndi þannig minna fólk á okkur og þennan góða vef.
Þar getum við lokað alfarið fyrir allra umræður þar sem við viljum að þær fari fram á Isalp.is

Einnig að bæta við "like" á allar síður Isalp.is. Rétt eins og allir íslenskir fréttavefir hafa gert. Þannig get ég like-að á einhverja skemmtilega umræðu eða frétt og allir mínir vinir á fésbókinni sjá hana.

Þannig fáum við fleirri inná vefinn og um leið mögulega fleirri virka þáttakendur.


Annars væri hægt að bæta isalp.is mikið með lítilli breytingu. Það þarf að lengja listann af umræðuþráðum sem birtast á forsíðunni. Nú sjást 10 þræðir og sá elsti er sjaldan meira en viku gamall. Þetta þýðir að góðar umræður geta dáið út ef nokkrar búnaðarauglýsingar eru settar inn. Það þarf ekkert að hræra í uppsetningunni á búnaðarsölu, bara lengja listann. Ég fer næstum aldrei inn á umræðusíðuna og býst við að fæstir geri það. Ef þráður er dottinn út af forsíðunni er hann horfinn í hafsauga.

Mér finnst alveg óþarfi að síðan reyni að halda uppi myndagalleríi. En það væri gott að safna myndum af leiðum. Tenging við leiðagrunn á Climbing.is gæti vel gengið. Annars hef ég reynt að sanka að mér myndum sem gætu nýst til þess að plana ferðir síðar meir. Slíkar myndir gætu vel átt heima í myndagalleríi hér á síðunni. Það er oft gott að plana ferðir með hjálp ljósmynda og korta. Þá ég við myndir eins og þessa. Ekki endilega flottar eða skemmtilegar myndir, heldur myndir af fjöllum.

Ein spurning. BookBank, hvað er það? Sýndist þetta vera öll Ísalprit niðurhalanleg og leist vel á. En það virðist ekkert virka.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.65 sek