Að gefnu tilefni og mikilli tillitssemi
26 nóv 2010 20:35 #10817
Skrifað 26 nóv 2010 20:35
Af gefnu tilefni vildi ég láta samfélagið vita að til stendur að fara með fríðan flokk Brattgengis á vegum Fjallaleiðsögumanna og klifra í gili Spora í Kjós snemma í fyrramálið (laugard. 27. nóv).
Við verðum fjórir leiðsögumenn og sjö brattgengir svo líklega verður þröng á þingi.
Jón Gauti
Re: Að gefnu tilefni og mikilli tillitssemi
27 nóv 2010 14:11 #10818
Skrifað 27 nóv 2010 14:11
Frétti að Ársæll ætlaði með nýliðana á sama stað í dag... fjör hjá ykkur!
Mæli með Villingadal fyrir fjölmenna byrjenda hópa, "vinstri dalurinn" er með amk. 300m breiðan 2 spanna WI3 foss núna og annað eins af WI2 léttmeti þar fyrir innan.
Re: Að gefnu tilefni og mikilli tillitssemi
28 nóv 2010 15:09 #10822
Skrifað 28 nóv 2010 15:09
Það var party í Villingadal í gær, rolla, rjúpur og mannfólk. Við Helgi Egils klifruðum hægri fossinn og Ársælingarnir léku á alls oddi í vinstri dalnum.