Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: GPS græjur

GPS græjur 29 sep 2010 22:51 #10508

Skrifað 29 sep 2010 22:51
Sælt veri fólkið.

Ég er að leyfa mér að dreyma um GPS græjur og vildi heyra hvaða tillögur menn og konur hafa í þeim efnum. Til þessa líst mér ágætlega á Garmin GPSMAP 62 og horfi helst til ódýrustu útgáfunnar þangað til einhver segir annað...

sjá: buy.garmin.com/shop/shop.do?cID=143&fKeys=FILTER_SERIES_62

Hvað leggið þið til?
map62.jpg

Re: GPS græjur 30 sep 2010 01:21 #10509

Skrifað 30 sep 2010 01:21
ég var að skoða svona græju um daginn og held að 62s sé betri kaup. Þessi er ekki útbúin fyrir auka minniskort og það er ekki hæðarmælir í henni sem þú færð í 62s.
Svo er gott að skoða á Ebay þar sem þú finnur þetta á uþb hálfvirði miðað við hérna heima.

Re: GPS græjur 30 sep 2010 09:11 #10510

Skrifað 30 sep 2010 09:11
Ég á svona með snertiskjá og verð að segja að það hefur komið skemmtilega á óvart. Finnst reyndar þessi með tökunnum alltaf svona meira traustvekjandi, án þess að ég hafi yfir nokkruð að kvarta nema síður sé!
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: GPS græjur 30 sep 2010 09:20 #10512

Skrifað 30 sep 2010 09:20
Hvernig virkar snertiskjarinn með hanskaklæddum höndum?

Re: GPS græjur 30 sep 2010 10:15 #10514

Skrifað 30 sep 2010 10:15
Flott að fá þessa umræðu í gang. Maður á sér alltaf þann draum að fá sér nýtt tæki, færa sig úr fornöldinni (GPS12) og yfir í eitthvað nútímalegra með kortamöguleikum.

Maður hefur kannski aðeins verið skeptískur á þessa snertiskjái en það gætu bara verið fordómar. Ívar segir hér t.d. að þeir virki vel. Hvað segja aðrir? Eru gömlu góðu takkarnir málið þegar maður er í þykkum vettlingum og við erfiðar aðstæður?

Eitthvað sem menn mæla sérstaklega með fyrir vetrarfjallamennsku, ísbrölt og annað í kulda og vosbúð?

Re: GPS græjur 30 sep 2010 10:45 #10515

Skrifað 30 sep 2010 10:45


Ég hef verið með svona græju með snertiskjá, virkar bara fínt. Þú oppereitar það náttlega ekki með dúnlúffum en þú gerir það hvort eð er ekki með GPS12. Þunnir vettlingar eru ekkert mál.

Eina sem ég er smeykur við er að skjárinn skemmist, á mínu tæki er bara "mjúkur" LCD skjár. Veit ekki hvort nýrri týpur eru með harðgerðari skjá.

Svo er náttlega bara hægt að kaupa sér nýjan gemsa með GPS og Google maps...

Skabbi

Re: GPS græjur 30 sep 2010 12:50 #10516

Skrifað 30 sep 2010 12:50
Skabbi á þitt tæki það ekki til að krassa?

Ég er búin að eiga Garmin Etrex legend í örugglega 4 ár og það virkar fínt. Hægt að setja minniskort og landakort.
Battery life á legend er 25 klst en 20 stundir á Garmin 62.
Mér finnst það skipta mjög miklu máli. Eins að tækið sé ekki of stórt.

Over & out.

Sveinborg

Re: GPS græjur 30 sep 2010 14:22 #10518

Skrifað 30 sep 2010 14:22
Ég hef notað Garmin Etrex vista með Íslandskorti og það hefur þjónað mér vel. Einfalt og étur ekki rafhlöður eins og mörg tæki.

Ég lít á alla auka fídusa og meiri þyngd sem ókost.

Ági

Re: GPS græjur 30 sep 2010 14:41 #10519

Skrifað 30 sep 2010 14:41
Er með Garmin 60Csx og gæti ekki verið ánægðari með það. Aldrei vesen.

Re: GPS græjur 30 sep 2010 21:58 #10521

Skrifað 30 sep 2010 21:58
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir wrote:
Skabbi á þitt tæki það ekki til að krassa?



Það gerði það reyndar þegar það var nýtt, krassaði reyndar svo kirfilega að ég þurfti að fá nýtt tæki.

Síðan þá hefur það verið í lagi, þeas nýja tækið.

Skabbi

Re: GPS græjur 30 sep 2010 22:43 #10522

Skrifað 30 sep 2010 22:43
Garmin Geko 201. lítið, létt og ekki skipt um rafhlöður einu sinni í tveimur mánaðarlöngum leiðöngrum.

Re: GPS græjur 05 okt 2010 18:37 #10531

Skrifað 05 okt 2010 18:37
Hef notað Garmin eTrex Vista HCX í líklega 6 ár. Held ég sé með nafnið á hreinu. Klikkaði aldrei, batteríin endast og endast. Það er nógu öflugt til þess að keyra Íslandskortið, en er samt með léttari tækjum.

Fékk svo fyrir um ári að gjöf Garmin Colorado 300 og er ekki sáttur við það. Fyrir það fyrsta vegur það um það bil þrisvar sinnum meira en gamla og eyðir batteríum á skotstundu. Það frýs einstaka sinnum og þá þarf að kippa batteríunum úr og setja aftur í. Stóri skjárinn og þægilegu takkarnir eru góðir, en þyngdin og batteríeyðslan fara alveg með það.

Ég tek ennþá frekar Vista tækið með mér þó skelin sé brotin og það er því ekki vel vatnshelt auk þess sem skjárinn er svo rispaður að ég þarf alltaf að sleikja hann fyrst og bleyta til þess að sjá á hann. Mæli með öllum eTrex tækjunum.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.28 sek