Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Langar þig í alpafjör?

Langar þig í alpafjör? fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10281

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Það fór væntanlega ekki framhjá mörgum að Örn félagi okkar Magga og Jóns Heiðars fór í þyrluferð frá Heljareggjum eftir ágætis flug niður af kletti...

Nú stefnir í að kallinn nái ekki að jafna sig fyrir alpaferð okkar félaga, upp á Matterhorn og Monte Rosa Massif (Spaghetti Traverse) og því erum við einum manni færri... sem er verra þegar klifurdúó er gjarnan skilvirkara en tríóið.

Því spyrjum við - er einhver fantagóður fjallamaður með bullandi þörf fyrir fjallafjör spenntur fyrir að bætast í hópinn?

Við erum búnir að skipuleggja ferðina í höngla og því auðvelt að detta inn í prógrammið. Þá erum við óttalega frábærir og lofum taumlausu stuði í tíu daga ferð sem hefst 17. júlí með flugi til svitzlands.

Allir áhugasamir taki miða og fari í röð og sendið á mig línu - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.




Re: Langar þig í alpafjör? fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10284

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Fjarkinn fundinn - Gummi stóri mun heiðra okkur með nærveru sinni og við því vel settir.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.28 sek