Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Varhugaverðar sprungur í Snæfellsjökli

Varhugaverðar sprungur í Snæfellsjökli 05 jún 2010 00:16 #10276

Skrifað 05 jún 2010 00:16
Varhugaverðar sprungur utan í Snæfellsjökli suð-austanverðum þessa dagana, það eru sérstaklega tvær í miðri skíðaleiðinni sem flestir fara, ca. 20-40m langar holur sýnilegar, ekki breiðar en stækka eflaust hressilega á næstu dögum þegar snjóbrýrnar bráðna frekar.

Hef ekki séð 3-4m breiðar sprungur þarna á þessum árstíma fyrr - eins gott að vera á *stórum* skíðum ...

-R

Re:Varhugaverðar sprungur í Snæfellsjökli 07 jún 2010 12:08 #10277

Skrifað 07 jún 2010 12:08
Vildi bara benda á áhugaverða mynd af Snæfellsjökli að hausti til sem finna má í fróðleiksgrein Veðurstofunnar um jöklakortlagningu en á henni má sjá helstu sprungumynstur í Snæfellsjökli.

Fróðleiksgrein um jöklakortlagningu
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.25 sek