Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hver gleymdi...?

Hver gleymdi...? fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10254

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Hver gleymdi/skildi eftir bláan nalgenbrúsa á Hnappavöllum um helgina? Ef einhver gerir tilkall til hans þá getur sá látið í sér heyra.

Re:Hver gleymdi...? fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10255

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
hei!
Annars væri alveg gaman að heyra í Ísölpurum, hvað var gert um helgina?

Var fjölmennt á Hnappavöllum? Frétti að einhverjir hafi farið á Þverártindsegg? Væntanlega einhverjir á Hnjúkinn? Einhverjir fóru í vorskíðun?

Færum facebookstatusa á spjallið;)



kv. Björk

Re:Hver gleymdi...? fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10256

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Við Gummi og Óðinn kíktum uppá Eggina á laugadaginn í glimrandi sól og hita. Eftir það skelltum við okkur á hnappavelli þar sem veður var ágæt. Myndir frá eggunnu má sjá á síðunni okkar.

http://www.climbing.is/

Kv.
Arnar

Re:Hver gleymdi...? fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10258

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Er með í fórum mínum snjóakkeri (silfurlitað) með blágrárri FiveO karabínu sem fannst í hlíðum Skarðsheiðarinnar síðasta sumar.

Eigandi óskast,

Himmi

Hvítasunnuhelgin fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10259

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan


Breyti hér með nafni þráðarins. Eigandi Bláa Nagensins verður bara að sætta sig við það.

Helginni eyddi ég að fornum sið á Hnappavöllum. Þar var að venju margt um manninn, börn, gamalmenni og allt þar á milli. Klifurveður með besta móti alla helgina, þurt og stillt framanaf en bjart og hvasst undir lokin.

Saknaði reyndar drykkjulátanna sem eitt sinn einkenndu þessa helgi, en tímarnir breytast víst og mennirnir með.

Allez!

Skabbi

Re:Hver gleymdi...? fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10260

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Gekk upp á hnjúkinn, loksins eftir margra ára bið. Verst að það var gert á föstudaginn þegar útsýnið var jafn mikið og í þvottahúsinu heima...

Thumbs up til myndanna hans Gumma, hrikalega flottar.

hvítasunnuhelgin fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10261

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Ég fór ásamt fríðum flokki skíðafólks inn í Flateyjardal. Gerðum út frá Heiðarhúsum og röltum á nálæga tinda sem bjóða upp á frábærar rennslisbrekkur. Eðal-vorfæri og frábær stemmning.

p.s. að minnsta kosti helmingur ferðafólks gat farið með tryllta fylleríssögu af Hvítasunnu á Hnappó.

Re:Hvítasunnuhelgin fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10262

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Fríður hópur (aðalega norðanmenn)fóru á Látraströndina og skíðuðu þar nærliggjandi toppa. Amk tveir heleski toppar voru sigraðir.
Mér telst til að amk. 25 manns skíðuðu frá Látraströnd að Flateyjardal þessa helgi. Sennilega fleiri sem ég veit ekki um.

Myndir og video væntanlegt

Re:Hvítasunnuhelgin fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10263

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Hvítasunnan var vinnuhelgi að vanda. Rölt á hnjúkinn á laugardag og ætlaði að skíða svínafellsjökulinn á mánudag en var sjanghæaður í aðra ferð á hnjúkinn. Það var amk. bíltúr austur með nýju skíðin!

Re:Hvítasunnuhelgin fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10264

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
9 Garðbæingar skruppu á Þverártindsegg. Skemmtilegt fjall það. Stutt og bratt.

Ági

Hvítasunnuhelgin fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10267

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Hátindahöfðinginn er svo hógvær að hann telur það ekki til tíðinda að gæda þrjá tinda í röð.
En hann fór með þrjá mismunandi hópa á Hnjúkinn, Þerártindsegg og Hrútfellstinda á 43 tímum um Hvítasunnuna.

kv
ps

Re:Hver gleymdi...? fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10268

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Fórum fjögur upp Hnappavallaleiðina á Öræfajökul og gistum tvær nætur rétt norðan við Hnjúkinn. Fórum á Þuríðartind, norðurhlíðina upp á hnjúkinn, Dyrhamar, Sveinstind og Sveinsgnýpu, Rótarfellshnjúk og Vestari Hnapp. Engin hasar en geggjað veður og sólbrunnin nef.

Re:Hver gleymdi...? fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10269

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
á laugardaginn skellti mér 9 holur í extreme golf náði pari á 6. og 9. endaði svo daginn á góðri ferð Mollið og grillaði um kvöldið.

Toppiði það
Kv. KM
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.48 sek