Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: BANFF í kvöld og annaðkvöld

BANFF í kvöld og annaðkvöld 26 apr 2010 09:42 #10182

Skrifað 26 apr 2010 09:42
Jæja, geri ráð fyrir að það hafi ekki farið fram hjá neinum að Banff fjallamyndahátíðin er í kvöld og annaðkvöld. Vona að það sé gríðarlegur stemmari í gangi og allir að fara mæta? Eins og í fyrra þá verður sjoppa á staðnum svo engin þarf að lenda í sykurfalli meðan á sýningum stendur.

Er einhvern mynd/myndir sem fólk bíður sérstaklega spennt yfir? Lát heyra...

Re:BANFF í kvöld og annaðkvöld 27 apr 2010 09:44 #10187

Skrifað 27 apr 2010 09:44
Flottar myndir og skemmtilegt kvöld.
Mér fannst fyrsta myndin skemmtilegust, fyndnir gaurar og síðan klettaklifurmyndirnar, þetta sólóklifur!

Ég tók samt eftir því að það kom held ég ekki einn kvenmaður fram í öllum þessum myndum. Eru engar konur að gera eitthvað töff sem kemst á Banff?

Hlakka til að sjá myndirnar í kvöld.

Re:BANFF í kvöld og annaðkvöld 27 apr 2010 10:23 #10188

Skrifað 27 apr 2010 10:23
Já, flottar myndir. Frakkarnir voru bestir fannst mér. Prima dæmi um góðan móral.

Re:BANFF í kvöld og annaðkvöld 27 apr 2010 10:25 #10189

Skrifað 27 apr 2010 10:25
Í kvöld mun kvenhetja láta ljós sitt skína í hinni áhugaverðu Rowing the Atlantic þar sem breski súper kvenmaðurinn Roz Savage fer alveg alein í róðra bát þvert yfir Atlantshafið í yfir 3000 mílna róðri.

Svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af skorti á kvennhetjum þetta árið á Banff Björk mín, þó vissulega mættu þær vera fleirri ;)

Sjáumst öll í kvöld!

Kv.
Arnar

Re:BANFF í kvöld og annaðkvöld 28 apr 2010 09:42 #10193

Skrifað 28 apr 2010 09:42
Jæja, hvernig fannst ykkur svo Banff hátíðin í ár ??!!

Við vitum að Björk er nú orðin himinlifandi eftir að hafa séð skvísu gera svakalegan hlut.

En hvað stóð uppúr? Var það mega-rennibrautin, sóló klifrið, Will Gadd eða skíðaklámið í lokin?


Gaman væri að heyra frá ykkur
kv, Gummi
www.climbing.is

Re:BANFF í kvöld og annaðkvöld 28 apr 2010 10:29 #10194

Skrifað 28 apr 2010 10:29
já það kom þarna ein kona sem skildi við kallinn sinn og fór að róa, rói - rói. Gott að vita að konur á Banff eru að gera eitthvað meira en að halda í spotta og hvetja gaurana áfram ;)


Mér fannst Azazel, Alone on the wall og Re:Session skemmtilegastar.

Re:BANFF í kvöld og annaðkvöld 28 apr 2010 10:42 #10195

Skrifað 28 apr 2010 10:42
Mér fannst Will Gadd frekar kjánalegur. Hann má alveg snúa sér að einhverju öðru en að fjöldaframleiða ísklifurmyndir með ofleik.

Mér fannst solo-klifrið, Alone on the Wall, alveg rosaleg.
Eins og mér finnst einhjól kjánaleg þá var myndin frekar fyndið. Á sama tíma og hún var sýnd kom í fréttum rúv viðtal við japana sem er að hjóla í kringum landið á einhjóli!!

Þó að róðramyndin hafi ekki verið æsileg þá er það samt alveg fáránlegt sem þessi kona gerði. Dísús!

Re:BANFF í kvöld og annaðkvöld 28 apr 2010 14:17 #10196

Skrifað 28 apr 2010 14:17
Impossible climb stendur uppúr í seinni hálfleik, górilluklifur af bestu sort urr urr!
Tek undir að Gadd var frekar tilgerðarlegur, undarlegt vídjó í meira lagi.
Corny-muslibar var svo sigurvegari kvöldsins, wtf!?

takk fyrir mig!

Re:BANFF í kvöld og annaðkvöld 29 apr 2010 08:41 #10200

Skrifað 29 apr 2010 08:41
Honnold sólari vara að rokka verulega fyrra kvöldið, þvílíkur töffari! Lokamyndin seinna kvöldið, Re:Sessions skíðamyndin var svaðaleg, líklega besta skíðamynd sem maður hefur séð fyrr og síðar.

Það er annars magnað hvað áhuginn á Banff virðist vera orðinn mikill, troðfullt bæði kvöldin og frábær stemmari.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.33 sek