Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: vantar uppl. um klifur á N Ítalíu eða nágrenni

vantar uppl. um klifur á N Ítalíu eða nágrenni 05 apr 2010 20:40 #10131

Skrifað 05 apr 2010 20:40
Ég ætla að skella mér með fjölskyldunni í ferðalag í lok júlí. Hugmyndin er að fljúga á Mílanó og flækjast eitthvað um. Vitið þið um einhver góð svæði til að heimsækja þar sem ég og dóttir mín getum klifrað á meðan eiginkonan hefur það gott í sólinni?

kv
Jón Heiðar

Re:vantar uppl. um klifur á N Ítalíu eða nágrenni 11 apr 2010 21:08 #10149

Skrifað 11 apr 2010 21:08
Aldrei komið þarna til klifurs en sé á www.coronn.com/TOPOS/climbing_areas.html að það eru nokkur svæði þarna í nágrenninu.
Lagðist ekki ítarlega í kortaskoðun en þú hlýtur að finna eitthvað út úr því á googlemaps og coronn.
Helst sýnist mér það vera Lago di Como/Lecco vera næst Mílano en svo er Arco eitthvað fjær og enn fjær Finale Ligure (sem er alla vegar risasvæði veit ég). Sennilega ekki nema 2-4 tímar á öll þessi svæði (ágiskun út í bláinn).
Það hlýtur að vera hægt að finna eitthvað um þetta á stóru klettaklifursíðunum, s.s. rockclimbing.com, planetfear.com, 8a.nu og fleirum.

Á 8a.nu er m.a. www.8a.nu/crags/List.aspx?AscentType=0&CountryCode=ITA&City=Lecco þar sem fjögur stór svæði eru nefnd. Veit ekki hvort þetta er tæmandi listi yfir Lecco svæðin.

Re:vantar uppl. um klifur á N Ítalíu eða nágrenni 11 apr 2010 21:29 #10150

Skrifað 11 apr 2010 21:29
Takk Sigurður,
ég var búinn að finna helling af svæðum á þassarri síðu 8a en var að vonast eftir að heyra frá einhverjum sem þekkti einhver svæði. Netið er fínt en alltaf enn betra að fá líka reynslulögur.

kv
Jón H

Re:vantar uppl. um klifur á N Ítalíu eða nágrenni 19 apr 2010 22:18 #10166

Skrifað 19 apr 2010 22:18
Get mælt með Finale Ligure sérstaklega þar sem þú ert með konuna með. Þá getur hún flatmagað á ströndinni meðað þið feðginin skelið ykkur í klettana, ca. 30-40 mín að fara uppí kletta.
Fór nokkrum sinnum þarna í síðustu öld og líkaði vel. Ef ég man rétt þá eru yfir 1000 leiðir þarna þanngi að það ef af nægu að taka.

Svo er bara hinn kosturinn að taka ferjuna og fara til Corsiku það er snild.

guðjón

Re:vantar uppl. um klifur á N Ítalíu eða nágrenni 26 apr 2010 12:48 #10185

Skrifað 26 apr 2010 12:48
Kannski rétt að minnast á það í leiðinni fyrir næsta vetrarfrí að Val d'Cogne við Aosta á víst að vera "besta ísklifursvæði í evrópu" að sögn Chamonix leiðsögumanna, ca 2,5t frá Cham. Hefur einhver komið þar?
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.32 sek